Efnisyfirlit yfir ýmislegt forvitnilegt sem gæti hafa farið framhjá þér á Samúel.is.
Vinsældalistar ársins 1969, árs- ins sem Samúel hóf göngu sína, eru afar merkilegir. Þá mátti t.d. sjá svo ólíka tónlistarmenn sem Presley og Zeppelin samtímis á lista. Samúel rifjar upp þrjátíu vinsælustu lög þessa merkisárs. Þú smellir á nafn lagsins sem þú vilt sjá og heyra og lest helstu upplýsingar um það í leiðinni.
Hér má sjá Stellu Kristinsdóttur sem prýddi forsíðu Samúels þegar hann fagnaði 10 ára afmæli árið 1979. Samúel sendi Stellu í myndatöku á ný. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá meira.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu efnisyfirlit yfir skrif Samúels um áhugaverða Íslendinga.
„Ég borða ýmislegt sem flestir létu aldrei ofan í sig," sagði Jón Páll Sigmarsson árið 1987 í viðtali við blaðamann Samúels, Gunnlaug Rögnvaldsson. Smelltu á fyrirsögnina og þér mun koma ýmislegt á óvart.
Umræðan um þóðaratkvæða- greiðslu hefur orðið síifellt há- værari hér á landi. Jón Björg- vinsson hefur búið í Sviss í yfir 20 ár, en hvergi í heiminum eru almennar atkvæðagreiðslur algengari. Skrif Jóns koma áreiðanlega mörgum á óvart. Fróðlegur og bráðskemmtilegur lestur. Smelltu á fyrirsögnina.
SAMMÚEL hefur safnað saman lögum með 20 bestu flytjendun- um á Woodstock 1969. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu m.a. á Arlo Guthrie, Ten Years After, Greatful Dead, CCR, Joan Baze, Crosby, Stills og Nash, Santana, Hendrix, Santana, The Who og Blood, Sweat and Tears.
Söngvarinn, lagasmiðurinn og skáldið Leonard Choen er orðinn 75 ára. Smelltu á fyrirsögnina til að hlýða á valin lög með honum. Þar á meðal upptöku frá í síðasta mánuði, en Choen er á hljóm- leikferðalagi um þessar mundir. Þú getur líka séð drykklangt sjónvarpsviðtal hann í leiðinni.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu Buddy Rich,djasstrommara allra tíma, taka hörku trommusólo og etja líka kappi við annan frægan djasstrommara, Gene Krupa. Sjáðu Johnny Mathis í leiðinni. Samúel birtir upptökur þar sem þessi tvöfaldi Grammy söngvari tekur þrjú frægustu lög sín.
Bonnie Parker hefði orðið 99 ára 1. okt., en hún var skotin til bana þegar hún var á flótta undan lögreglunni fyrir 75 árum ásamt félaga sínum, Clyde Barrow. Bonnie og Clyde eru eitthvert sögufrægasta glæpahyski sög- unnar. Warren Beatty og Fay Dunaway fóru með hlutverk þeirra í eftirminnilegri kvikmynd sem gerð var 1967. Smelltu á fyrirsögnina og rifjaðu upp flott lag sem George Fame söng um parið og sjáðu líka fréttamynd frá endalokum bófadúettsins 1934.
Sting varð 58 ára á föstudaginn. Fjöldi áheyrilegra tónlistarmanna til viðbótar er á lista Samúels yfir afmælisbörn 2. október. Þeirra á meðal Sigtryggur Baldursson (Bogomil Font). Smelltu á fyrir- sögnina og hlustaðu á nokkur lög með báðum strákunum og hinum tónlistarmönnum á listanum.
Í tilefni af afmælishátíð Jazz- hátíðar Reykjavíkur 2009 hefur Samúel safnað saman á síðu tenglum inn á djass í flutningi nokkurra af stórmeisturum djassins. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á almennilegan djass.
Leikarinn Nicholas Cage safnar stóreignum í Evrópu og Banda- ríkjunum. Hvað skildi hann kaupa fyrir tekjurnar af nýjustu mynd- inni, Knowing, sem er mest sótta kvikmyndin vestanhafs þessa dagana og hann á prósentum af tekjunum? Skatturinn er ekki fyllilega sáttur við skattskýrslur hans. Smelltu á fyrirsögnina og lestu allt um málið.
Flottir tónleikar sem RUV sýndi með norska söngvaranum Alex- ander Rybak á sunnudagskvöld. Líttu á síðuna með samantekt á því Eurovison efni sem Samúel hefur birt. Lestu meðal annars um klúðrið sem hafði nær gert útaf við keppnina 1969.
Smelltu á fyrirsögnina ef þú vilt senda Samúel skammir, hrós, ábendingar, pistil, fyrirspurnir eða ljósmyndir. Eins til að sjá síma auglýsinga- og ritstjóra.
Samúel varar viðkvæma við dónaskapnum í vídeóinu sem birtist í Heimsmynd til kynningar á nýjasta lagi þýsku hljómsveit- arinnar Rammstein. Nafnið er líka skrambi djarft. Lagið heitir Pussy. Smelltu á fyrirsögnina - ef þú þorir ...
Samúel dregur fram frétt RUV frá komu hljómsveitarinnar hingað til lands 1970 og fleira huggulegt með hljómsveitinni.
Þetta er Jeff Monson, tröllið sem hefur viðurnefnið snjómaðurinn ógurlegi. Tvöfaldur gullverð- launahafi, sem hampaði bronsi á ADCC mótinu. Hann hafði þó þurft að sætta sig við að láta í minni pokann fyrir Gunnari okkar Nelson. Gunnar er 40 kílóum léttari en Monson og var auk þess yngstur og óreyndastur. Smelltu á fyrirsögnina.
Fyrir réttum aldarfjórðungi birti Samúel viðtal við Rúna Júl í tilefni af því að þá voru liðin um 20 ár frá því að Hljómar mættu til leiks í íslensku tónlistarlífi. Rúni var í miklu stuði. Sagði m.a. frá því þegar hann kynntist Jimi Hendrix á klóinu. Smelltu á fyrirsögnina.
24. september er m.a. fæðingar- dagur Gerry Mardsen, sem söng með hljómsveitinni The Pace- makers á sjötta áratugnum, Jim Hensons, skapara Prúðuleikar- anna og Lindu McCartney, sem giftist Paul árið sem Samúel hóf göngu sína. Smella á fyrirsögn.
Smelltu á fyrirsögnina til að lesa um nýju bítlaútgáfuna og sjá kynningarvídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá kvkmyndina HOME , sem Yann Arthus-Bertrand gerði og frumsýndi samtímis um allan heim 5. júní síðastliðinn. Hafir þú séð myndina viltu áreiðanlega njóta hennar á ný.
Það er ekki fyrir viðkvæma að horfa á þrjá fréttaskýringaþætti sem finna má í vídeó-safni CNN á vefnum. Þar er fjallað um ógn- arstjórn Pol Pots í Kambódíu, en hann lét pynta og myrða 1,7 milljón manna. Þeir heppnu voru myrtir strax! Smelltu á fyrirsögn- ina ef þú treystir þér til ...
SAMÚEL átti viðtal við fyrrum leiðtoga Ku Klux Klan árið 1994. Samúel kynnti sér viðbrögð hans við svörtum Bandaríkjaforseta.
Forsíða Samúels í október 1990 þegar tímaritið kynnti þrjá fyrstu keppendurna í Hollywood-keppninni það árið og raunar síðustu Hollywood-keppninni, sem Samúel og diskótekið við Ármúla efndu til. Úrslit keppninnar urðu þau, að Elín Reynisdótir (lengst til vinstri) bar sigur úr bítum og hlaut að launum ferð til Kaliforníu og Spánar. Nú styttist óðfluga í að Samúel hefji göngu sína af fullri alvöru á netinu eftir stutt hlé. Meðal áhugaverðra efnisþátta verður ný módelsamkeppni að hætti Samúels, ekki ósvipuð keppninni um titilinn ungfrú Hollywood. Núna er keppninni sett fram sem sem stelpnaslagur. Í einn mánuð í senn skiptast á myndbirtingar af tveimur stúlkum ásamt kynningu á þeim. Önnur þeirra er ljósahærð og hin dökkghærð. Samtals verða þátttakendur keppninnar tólf talsins. Við útskýrum fyrirkomulagið nánar á næstu dögum. Meðal sigurlauna í keppninni eru módelmyndatökur á sjóðheitum stöðum erlendis sem stúlkurnar í efstu sætunum fara í. Leit að keppendum stendur yfir og eru allar ábendingar vel þegnar. Aldurstakmarkið er 18 til 26 ára. Ábendingar óskast sendar á netfangið samuel@samuel.is Ljósm.: ÞJM/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Þegar Samúel hafði verið á netinu frá ársbyrjun 2009 fram í október gat hann státað af um 20 milljón flettingum. Þá tók hann sér frí af óviðráðanlegum orsökum. En hann kemur sprækur í netagerðina á nýjan leik innan skamms og kynnir þá margt nýtt til sögunnar auk þess að dusta rykið af gömlu, góði stöffi "from the good old days!" Líttu á tilvísanirnar hér á forsíðunni og þú hefur nóg við að vera á meðan Samúel er í fríi. Varstu t.d. búinn að skoða Heimsmynd almennilega? Smelltu á fyrirsögnina.
Upphafsár internetsins er 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Nánar tiltekið 30. september. Internetið er því orðið 40 ára. Saga netsins er yfirleitt rakin til ársins 1962, en á því ári setti Bandaríkjamaður að nafni J.C.R Licklider saman nokkra minnispunkta, sem lýstu hugmyndum hans um heimsnet tengdra tölva, sem gerði fært að skiptast á upplýsingum, forritum og öðru tölvutæku efni tölva á milli. Þegar árið 1967 varð til hið svokalla "ARPANET", sem ætlað var til þess að senda og taka á móti efnispökkum tölva á milli, og árið 1969 höfðu fjórar móður- tövlur tengst netinu. Árið 1972 varð tölvupóstur til og forrit honum tengt, sem gat lesið, sett í skrár, sent áfram og svarað tölvupósti. Í tilefni af 40 ára afmæli netsins afsöluðu Bandaríkin sér yfirráðum yfir Ican (áður Arpanet), sem er einskonar eftirlitsstofnun netsins. Rod Beckstrom, yfirmaður Icann, sagði viðeigandi að Icann hljóti formlegt sjálfstæði á þessum degi, enda sé internetið löngu orðið alþjóðlegt.
Red Faction Guerrilla er fínn hasarleikur með nóg í pokahorninu til að halda vel dampi, segir Franz Gunnarsson í umsögn sinni um nýjan Playstation tölvuleik sem gerist á Mars. Smella á fyrirsögn til að lesa meira og sjá sýnishorn.
Sægur af góðum tónlistarmönnum átti afmæli í gær og sömuleiðis er athyglisvert hversu margir þjóðarleiðtogar eru fæddir þennan dag, 29. september. Samúel nefnir þá helstu og birtir upplýsingar um liðið, myndir og einnig tónlistarvídeó eftir atvikum. Af öllum afmælisbörnunum í gær er Erica Mayya Elaniak í mestu uppá- haldi og hefur verið það lengi. Hún var ein af píunum hans Davíðs Hasselhoffs í Strandvörðunum. Frægðarferillinn hófst þó eiginlega með opnu í Playboy, eins og hjá þeim svo mörgum, þessum elskum. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu fleiri ljós- myndir og huggulegt bíóbrot.
SAMÚEL birtir nú í heild sinni viðtal Guðjóns Smára Valgeirssonar við Hörð Torfa- son sem Samúel birti árið 1975. Viðtalið var kynnt á forsíðu sem viðtal ársins, en hefur gjarnan verið nefnt VIÐTAL ALDARINNAR á umliðnum árum. Með opinskáu viðtali sínu við Samúel fyrir 34 árum varð vísnasöngvarinn og leikarinn vinsæli fyrsti íslenski homminn til að koma út úr skápnum. Viðbrögðin voru hatröm. Herði var hótað lífláti, hvað þá annað. Flúði hann land og bjó í Danmörku árum saman. Viðtalinu er þó af öllum þakkað það, að fljótlega treystu hommar og lesbíur sér til að hefja réttindabaráttu sína. Hún hefur borið þann árangur, að í dag er Ísland talið einna lengst komið í að viðurkenna fullan tilverurétt þessa þjóðfélagshóps. Meðfylgjandi mynd tók Þórarinn Jón af Ara Magg að mynda Helga Þór sem þarna var í hlutverki Björgvins Pálssonar ljósmyndara að ljósmynda leikara sem sviðs- settu uppsillingu Samúels frá 1975. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira.
Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á upptöku sem gerð var með Karenu Pálsdóttur flytja lagið In The Future áður en hún flutti það í beinni útsendingu Ríkissjón- varpsins þar sem mistök tæknimanna sjónvarpsins slógu hina ungu söngkonu út af laginu. Hlýddu líka á upptökur Örlygs Smára með þrælgóðum söng hennar undir stjórn söngkennarans hennar, en það er engin önnur en Regína Ósk. Eftir að hafa hlýtt á upptökuna skilur þú hvers vegna Karen var fengin til að syngja lagið In The Future í undankeppninni. Samúel mælir líka með að þú hlustir á lagið Impossible á My Space-síðunni, sem þér er vísað á þegar komið er inn á grein Samúels um söngkonuna ungu. Sannarlega áhugaverð söngkona!
Steppenwolf voru á meðal þeirra sem komu fram á Woodstock 1969. Það sama ár áttu þeir eitt aðal lag kvikmyndarinnar Easy Rider með þeim Dennis Hopper og Peter Fonda í aðalhlutverkum. Það var lagið Born to be Wild. Lagið spiluðu þeir í þætti Ed Sullivans. Bassaleikarinn Nick St. Nicholas og Sullivan eru báðir fæddir 28. september en með þokkalegu millibili í árum talið. Sullivan hefði orðið 108 ára 28. september, en Nick á enn eitt ár í að teljast löggilt gamalmenni. Smelltu á fyrir- sögnina til að rifja upp lög Steppenwolf og sjá Sullivan. Afmælisagabókin geymir einnig lög með djassistanum John E. Gilmore, söngkonunum Hillary Duff og Jennifer Rush, bllúsdrottningunni Koko Tylor, söngvaranum Ben E. King, hljóm- sveitinni 10cc - og er þá ekki allt upp talið. Þú bara smellir á nöfn afmælisbarn- anna og lögin hljóma ...
Við höfum séð hana mikilúðlega í hlutverki Maríu Magdalenu í kvikmyndinni The Passion of the Christ og svo höfum við líka séð hana leika lostafullar nútíma- konur. Flott leikkona í alla staði. Þegar Samúel hóf göngu sína árið 1969 var hin ítalska Monica Bellucci nýfarin að ganga líka, en hún er fædd 1968.Hér fyrir ofan er mynd af henni sem tískutímarit karla, GQ, birti. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu fleiri myndir af leikkonunni og huggulegt bíóbrot.
Konungur blústónlistarinnar, B.B. King varð 84 ára í gær, 16. september. Hann er enn að koma fram opinberlega þó svo að hann hafi haldið röð kveðjutónleika fyrir nokkrum árum. Smelltu á fyrirsögnina og lestu um kónginn á meðan þú hlustar á hann taka eitt af sínum bestu lögum ásamt gítarleikararnum Gary Moore. Samúel kemur þér líka í snertingu við fleiri spennandi síður með tónlist B.B. King.
Í þessum mánuði eru liðin 40 ár síðan útgefendur Samúels fögnuðu því með teiti að upplag fyrsta tölublaðs Samúels var á þrotum. Þá sömu helgi var líka efnt til samkomu nærri Bethel í Bandaríkjunum. Þar kom saman heldur meiri mannfjöldi, eitthvað um hálf milljón manna taldist þeim til. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa um Woodstock-hátíðina sem tímaritið Rolling Stone telur merkasta tónlistarviðburð rokksögunnar.
Samúel gluggar í 16 ára gamalt þrælskemmtilegt viðtal við Össur Skarphéðins- son. Hann er eini karlmaðurinn sem hefur orðið þess mikla heiðurs aðnjótandi að vera Pinup strákur Samúels, en hann var þá umhverfisráðherra. Smelltu á fyrirsögnina til lesa meira.
Þeim mörgu sem urðu af Lennon-tónleikum Samúels og Zonet á Nasa 09.09.09, gefst nú tækifæri til að bæta úr þeim missi næstkomandi föstudagskvöld kl. 22:00. Þann dag hefði Lennon orðið 69 ára gamall, en hann var myrtur 1980, þá fertugur. Tónleikarnir verða endurteknir í Listasafni Reykjvíkur - Hafnarhúsinu og verður Yoko Ono, ekkja Bítilsins, viðstödd tónleikana. Fyrr um kvöldið, eða kl. 20:00, tendrar hún friðarsúluna í Viðey, sem reist var til minningar um Lennon. Býður Yoko upp á ókeypis ferðir til Viðeyjar daganan 9. til 11. október og sömuleiðis býður hún ókeypis aðgang að tóneikunum. Smella á fyrirsögnina til að lesa meira og sjá myndir frá Lennon-tónleikunum á Nasa sem og vídeó sem Yoko Ono lét gera um Friðarljósið og hvernig hugmyndin að því kviknaði hjá hjónunum.
Verðbólgudraugurinn er aldeilis ekki eini draugurinn sem gerir mönnum lífið leitt. “Sannleikurinn er sá að það er daglegt brauð að leitað sé til miðla og kirkjunnar manna eftir aðstoð við að hrekja burtu framliðna úr íbúðarhúsum,” sagði Magnús Skarphéðinsson formaður Sálarrannsóknarfélags Reykjavíkur í viðtali við Samúel. Tilefnið var upprifjun á grein sem birtist í tímaritinu fyrir meira en 30 árum. Hún bar fyrirsögnina “Framliðnir spilla fasteignasölu í Reykjavík" ...
Stúlkan á myndinni á heima í Pennsylvaníu. Hún var dæmd til þriggja mánaða fangelsisvistar fyrir að gera grín að aðstoðarskólastjóranum á MySpace. Fleiri börn á aldrinum 10 til 17 ára voru dæmd til allt að 4 til 5 ára fangelsis fyrir litlar sem engar sakir. Við rannsókn kom í ljós að tveir dómarar höfðu sent tvö þúsund börn í fangelsi á fimm árum. Um er að ræða tvö einkarekin fangelsi sem höfðu greitt dómurunum jafnvirði 300 milljóna króna í þóknun. Réttarhöldin stóðu mörg skemur en eina mínútu og án þess að börnunum væri kynntur réttur þeirra eða þeim boðinn lögfræðingur. Smelltu á fyrirsögnina og lestu meira - og sjáðu líka fréttavídeó frá CNN og CBS sjónvarpsstöðvunum. Sjáðu viðtal við dreng sem ellefu ára gamall var dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar fyrir að stelast til að setjast undir stýri á bíl móður sinnar og klessa hann.
Þetta var nú ekki í eina skiptið sem Gwen Stefani, söngkona hljómsveitrarinnar No Doubt, flassaði. Núna keppist hún aftur á móti við að klæða aðra í fötin sín. Það er að segja, selja sem flestum fötin sem hún er farin að hanna og fjöldaframleiða. Gwen er jafnaldra Samúels, varð 40 ára í gær, en lítur jafnvel betur út en hún gerði þegar hún sló fyrst í gegn fyrir 14 árum síðan. Hún á tvö börn, það yngra er um eins árs. Nú er hún komin með six-pack í stað bumbunnar og klæðist knall- stuttum bolum til að sýna fínheitin á tónleikum. Gwen Stafani er enn ein sönnun þess að það er líf eftir fertugt, en hún var nýverið að sýna vorfatalínuna 2010. Segist hún hafa fengið innblástur frá tónlistarvídeói og bíómyndum frá árinu 1980, en línan verður með sýruþvegnar gallabuxur og toppa í anda Flashdance. Smelltu á fyrirsögnina til að heyra vinsæl lög með Gwen Stefani - og fleirum.
Íslenski bardagamaðurinn Gunnar Nelson vann til gullverðlauna í sínum þyngdar- flokki og silfurverðlauna í opnum flokki á Pan American mótinu í Jiu Jitsu sem var haldið í New York síðastliðið laugardagskvöld. Gunnar fylgdi þar eftir frábærri frammistöðu sinni frá næst síðustu helgi þegar hann lenti í fjórða sæti í Barcelona á móti sem haldið er á tveggja ára fresti og er almennt talið það erfiðasta í heimi í uppgjafarglímu. Gunnar kemur heim um næstu helgi, en helgina 17.-18. október fer til Stokkhólms til að keppa á opna Norðurlandamótinu í Jiu Jitsu ásamt fleiri íslenskum keppendum. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa fyrri skrif Samúels.
Vinnufélagarnir Jóhanna Sigurðardóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir áttu afmæli í gær. Sömuleiðis sægur af góðum tónlistarmönnum og frægum leikurum, að ógleymdri Christina Smith, sem var opnustúlka Playboy í mars 1978. Smelltu á fyrirsögnina og þín bíður mikil veisla fyrir augu og eyru.
Eden í Hveragerði, sem sótti nafn sitt á fyrstu blaðsíðu Biblíunnar, hefur opnað á nýjan leik. Nú undir nafninu Iðavellir og er staðurinn nú eins heiðinn og kostur er. Staðurinn er sem sé orðinn setur norrænnar goðafræði. Þar er þó veitingarekstur sem fyrr, en veitingar bera núna nöfn sem sótt eru í goðafræðin. Ljósm.: ÞJM
Lewis Hamilton vann öruggan sigur á götum Singapúr síðastliðinn sunnudag eftir að Sebastian Vettel var dæmdur brotlegur fyrir að aka of hratt á þjónustusvæðinu. Hann hafði elt Hamilton eins og skugginn, en fékk akstursvíti og varð að aka aukalega í gegnum þjónustusvæðið. Það dró vígtennurnar úr mótinu og Hamilton gat siglt af öryggi í endamark. Í útsendingarstúdíói Formúlunnar á Stöð 2 Sport var líka fagnað um helgina af nærtækara tilefni. Rúnar Jónsson, annar aðstoðar- manna Gunnlaugs Rögnvaldssonar við kynningar, fékk afmælistertu í beinni, en Rúnar leit fyrst dagsins ljós árið 1969, sama ár og Samúel hóf göngu sína. Sam- starfsmaður strákanna heitir Halldóra Matthíasdóttir. Smella á fyrirsögn til að lesa um úrslitin.
Söngvarinn og lagasmiðurinn JASON MRAZ hefur átt eitt og sama lagið á lista Billboard yfir 100 vinsælustu lögin lengur en nokkur annar í rúmlega hálfrar aldar sögu vinsældalistans. Samúel hefði að sjálfsögðu átt að hafa mynd af Jason Mraz með þessari tilvísun frekar en Stacy Ann Ferguson, söngkonu The Black Eyed Peas. Það er annars smekksatriði. Þau sitja nefnilega í efsta sæti i listans í þessari viku. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á 30 efstu lög Billboard-listans þessa stundina. Fullt af nýjum lögum.
Honda hefur vakið hið fræga Monkey mótorhjól upp frá dauðum. Þetta fyrsta alvöru smámótorhjól kom upphaflega fyrir almenningssjónir árið 1961 sem einskonar skemmtitæki í Tama Tech skemmtigarði Honda í Japan, en það fór síðar í fjöldaframleiðslu og sást þá á götum Reykjavíkur hvað þá annars staðar. Það sem er mest um vert er að hjólið eyðir minna en einum lítra af bensíni á hundrað kílómetrum. Smelltu á fyrirsögnina til að fræðast meira um hjólið.
Smelltu á fyrirsögnina til að senda skammir, hrós, ábendigar eða fyrirspurnir.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Taktu þér frí í vinnunni, smelltu á fyrirsögnina og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá tveimur síðustu mánuðum. Tónlistarvídeó, grín, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, flottar píur, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ein af þekktustu kynbombum Hollywood er hin sænska Karen Viktoria Silvstedt. Heilmikið fyrir augað og svo getur hún líka sungið sæmilega og hefur verið vinsæl í kvikmyndum og sjón- varpi. Smelltu á fyrirsögnina og kynntu þér málið nánar.
Ray Charles, Bruce Springsteen og Julio Iglesias eiga sama afmælisdag að ógleymdum djassistanum John Coltrone. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á tónlist þeirra í boði Samúels ...
Fjölmargir söngvarar og hljóð- færaleikarar áttu afmæli 22. september auk Ragga Bjarna. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu listann yfir afmælisbörnin. Samúel kemur þér í snertingu við tengla inn á tónlistarvídeó með tónlistarfólkinu - og ljósmynda- syrpur af öðrum ...
Í tilefni af því að hérlendis voru veitt í vikunni verðlaun fyrir bæði bestu og verstu auglýsingarnar í íslensku sjónvarpi skellti Samúel inn tilvísunum á nokkrar auglýs- ingar sem bannað er að sýna í sjónvarpi erlendis. Smelltu á fyrirsögnina og njóttu!
Tónlistarmaðurinn Roger Waters er enn hinn sprækasti í rokkinu, orðinn 65 ára. Í fyrra veitti hann viðtöku merkum verðlaunum fyrir framlag til bæði dægurtónlistar og sígildrar tónlistar. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa, sjá og heyra..
Sveitasöngvarinn, lagasmiðurinn, rithöfundurinn og ljóðskáldið Willie Nelson varð 76 ára í síðastliðinni viku. Smelltu á fyrirsögnina til að hlýða á eitt af ljúfu lögunum með karlinum og sjá lista Samúels yfir fræg afmælisbörn dagsins.
Samkvæmt heimildum Billboard hefur ekkert dægurlag verið spilað oftar síðustu hálfa öldina en lagið Let's Twist Again með Chubby Chucker. Hann söng líka lagið Limbo Rock. Smelltu á fyrirsögnina og rifjaðu upp þessi ógleymanlegu lög og lög margra fleiri áhugaverðra tónlistarmanna síðustu ára.
Þar sem svo margir þurftu frá að hverfa þegar efnt var til Alice In Chains Tribute tónleika síðast- liðinn fimmtudag á Sódóma verða aukatónleikar næsta föstudagskvöld. Fleiri lög eru komin á dagskrá og hljómsveitin Hoffman kynnir nýja plötu sína sem kemur út þennan sama dag. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira og sjá vídeóupptöku frá tónleikunum í síðustu viku.
Buster Keaton var einn af meisturum þöglu myndanna. Hann hefði orðið 114 ára í gær, sunnudag, en hann lést 1966. Smelltu á fyrirsögina og sjáðu brot af því besta úr myndum hans.
Það er forvitnilegt að fylgjast með átökum blaðakonunnar á Vikunni við Geira í Goldfinger. Samúel var að reyna að mynda sér skoðun á málinu ...
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá kynningar á áhugaverðustu kvikmyndunum sem nú eru til sýninga. Sjáðu fréttavídeó um trílógíuna eftir sögum Stieg Larsson og viðtal við Noomi Rapace sem er í aðalhlutverki. Veistu hverjum hún er gift? Þú getur gengið frá bíómiðakaupum hér á Samúel.is
Batman er vinsælasta hasar- blaðahetjan sem ratað hefur í kvikmyndabransann. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu hina á Topp 10 listanum.
Spjallþáttadrottningin Barbara Walters spurði leikarann Patrick Swayze að því í janúar hvað hann teldi sig eiga langt eftir. Hann kvaðst vera löngu dáinn samkvæmt blaðafréttum. Nú er hann loks látinn, 57 ára að aldri. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu einstakt viðtal Barböru Walters við leikarann.
Franz Gunnarsson hefur prófað níu tölvuleiki fyrir Samúel. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira.
Fjórða september voru liðin 40 ár síðan Bjöggi var kosinn Popp- stjarna ársins á stórtónleikum í Laugardalshöll þar sem vinsæl- ustu hljómsveitir landsins komu fram. Smella á fyrirsögn.
Fjöldi listfræðinga var fenginn til að tilnefna tíu bestu söfn í heimi. Samúel birtir listann. Hefur þú séð eitthvert þessara safna? Kyrrlát stund á listasafni er andleg næring fyrir sálina.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá hvað kínverska stjörnuspekin segir um merkið þitt.
Við köllum snillinga gjarnan Einstein. Hér er páfagaukur sem verðskuldar vissulega það gælunafn. Hann kann yfir 200 orð, hljóð og stæla. Enda er hann orðinn frægasti fugl í heimi og er boðið í hvern frétta- og sjónvarpsþáttinn á fætur öðrum. Þetta verður þú að sjá og heyra.
Samúel er á því að nær væri að tala um Gamla Ísland í stað Nýja Ísland. Allt virðist hníga í sömu átt. Tökum t.d. stjórnmálin, báðir hugleiddu þeir Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson endurkomu á þeim vettvangi. Allt útlit er svo fyrir að fljótlega setjist Bjarni Ben í formannssætið í Sjálfstæðisflokknum. Samúel telur til enn fleira. Smelltu á fyrirsögnina og lestu meira.
Hvað ef knattspyrnumaður skipti um lið í miðjum leik og færi að spila MEÐ mótherjunum? Út í hött, segir þú! Jebb, En hvers vegna ættum við þá að lýða fulltrúum okkar á Alþingi að leika þann leik? Smelltu á fyrirsögnina og lestu pælingar Samúels.
Skildu Jón Ásgeir og Ingibjörg vera til í makaskipti? Í því gæti falist góð tilbreyting samfara slökun eftir allan gauraganginn og þotulífið. Smelltu á fyrirsögn- ina til að lesa meira.
„Mér þykir vænt um maka minn, börn mín og föðurland ….. en ég elska bjór." Næstu dagana rifjar Samúel upp sitthvað úr sögu bjórsins hér á landi.
Idol-dómarinn Simon Cowell er einn fára auðmanna í heiminum sem hefur bætt fjármunum í fjárhirslur sínar að undanförnu þrátt fyrir heimskreppuna. Hann flutti nýverið í glæsileg híbýli í Los Angeles. Fínheitin kosta jafnvirði 2,8 milljarða íslenskra króna eftir að hann hefur á fjórum árum látið gera allt í stand nákvæmlega eftir sínu höfði. Fyrir á hann flottar húseignir út um allan heim. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira.