UNDIR ÞRJÚ AUGU

Konur trúa á ást við fyrstu sýn. Karlar trúa á ást við fyrsta tækifæri ...    

Læknirinn: „Þú verður að hætta algjörlega að drekka í fjórar vikur og síðan mun ég athuga hvort það verði til að laga heilsu þína.” „En læknir, væri þér ekki sama þó að ég drykki helmingi meira en venjulega næstu fjórar vikur og síðan athugir þú hvort mér hafi versnað.”

Gamall maður staðnæmdist fyrir framan skyndibitastað og sá skilti sem á stóð: PIZZA 300 krónur. Hann hristi höfuðið hneykslaður og tautaði með sjálfum sér um leið og hann labbaði framhjá: „Thja, þeir kunna að reikna út gjöld fyrir allan andskotann þessir labbakútar þótt þeir kunni ekki að stafa einföldustu orð.”

„Farðu nú að flýta þér, kerling. Við verðum að fara að koma okkur af stað í leikhúsið. Klukk- una vantar tíu mínútur í átta.” „Tíu mínútur í átta! Og þú segir það núna fyrst.”

Samúel getur ómögulega skilið hvers vegna Nói notaði ekki flugnaspaðann á síðustu tvær flugurnar þegar hann hafði tækifæri til þess.

Sigga saumakona var að labba heim úr vinnunni þegar hún rakst á flassara í þröngri götu. Hann fletti frá sér frakkanum og var allsber innan undir honum. Sigga leit á frakkann eitt augnablik með fyrirlitningu og sagði svo: „Kallarðu þetta saumaskap?”

Veistu hvað LXIX er? Það er erfiðari aðferðin við sixtínæn ...!

Tveir gamlingjar voru að ræða um karla sem selja blíðu sína. Annar sagðist hafa heyrt að menn fengju um það bil 15 til 20 þúsund krónur fyrir skiptið. Síðan sagði hann undrandi: „En hver getur lifað á 15 til 20 þúsund krónum á mánuði, ha?”

Kólumbus er talinn einn mesti stjórnmálamaður sögunnar. Hann fór bara af stað, vissi ekkert hvert hann var að fara, kom á staði en vissi ekkert hvar hann var, kom þaðan og vissi ekkert hvaðan hann var að koma. Og til að kóróna þetta allt: Hann gerði þetta allt á kostnað annarra.

Húseigandinn bauð nýja, huggu- lega leigjandann velkominn í nýju leiguibúðina um leið og hann rétti dömunni tvo lykla að íbúðinni. „Hérna er húsaleigan, vinur," sagði hún þá og rétti honum annan lykilinn.

Þegar hann hafði setið í tvo tíma á biðstofu læknisins var hann búinn að fá nóg, stóð upp og sagði: „Ég held ég fari heldur heim og deyi eðlilegum dauð- daga.”

REST IN PEACE MR. McDONALD

Samúel komst yfir mynd frá kistulagningu McDonalds á Íslandi ...

HVAÐ EF ...

Hvað ef Pete Townshend í Who hefði farið í klassíkina fremur en rokkið?

SVISS Í VOPNAFRAMLEIÐSLU?

Þannig liti svissneskur skriðdreki vafalaust út.

BLÓÐBANKINN

Hvað ef blóðsugurnar í Blóðbankanum væri af gamla skólanum?

NÚTÍMINN

Er ekki líklegra að afar nútímans dundi við að setja saman Star Wars skip í flösku fekar en gamaldags seglskip?

SKÝRINGIN

Skýringin á því að ekkert hefur spurst til Loch Ness skrýmslisins lengi mun vera sú að skoskur stangaveiðimaður setti öngulinn í kvikindið fyrir all nokkru siðan.

HÉR DUGA BOGAR OG ÖRVAR VEL

Hvað Hrói Höttur hefði verið kátur in the old days ef kastalar hefðu verið uppblásnar gúmmítuðrur eins og í dag.

ÞETTA VAR FYRIR TÍÐ FARSÍMANS

E.T. PHONE HOME!

ÚR UPPSKRIFTABÓKINNI

Tja, nú er það spurningin hver er líklegastur til að éta hvern?

FRÁ SÁLARRANNSÓKNARFÉLAGINU:

Allt fyrir draugabana!

FRÉTTAMYND DAGSINS

Heyrðu, þeir voru að finna niðurfall á botni Miðjarðarhafsins ...

MEIRA AF E.T.

E.T. drífa sig heim ...

PACMAN

Þann 21. maí síðastliðinn voru liðin 30 ár frá því Pacman kom fyrst fram á sjónarsviðið. Hann er nú sestur á helgan stein, eins og meðfylgjandi mynd sýnir.

SÍÐAST EN EKKI SÍST

Samúel taldi rétt að koma með þessa í lokin. Hún er dulítið snúnari en hinar myndirnar frá Glennz.

ÞANNIG MINNAST MENN GEORGE BUSH YNGRI

SMELLTU HÉR TIL AÐ SJÁ GRÍNIÐ ...

Þegar minnst er á Bill Clinton dettur mönnum strax í hug stúlka að nafni Monika Lewinsky, því miður! Þegar menn horfa yfir forsetatíð George W. Bush kemur fyrst upp í hugann einhver af hinum klaufalegu ræðum hans. Og svo er hann ótrúlegur flækjufótur. Ljósmyndavélar festu margt af því í stafrænt form. Skoðaðu mynda- serínua.

Með allt á tæru

Bárður í bókhaldinu er ekki sá farsælasti í umferðinni, en hann hefur aldrei klikkað á bókhaldinu.

Réttu mér hjálparhönd!

Hvað svo sem segja má um Greenpeace-samtökin þykir Samúel hér vera farin smellin leið til að biðja um hjálparhönd.

NEMA HVAÐ?

Ef allt um þrýtur er táningnum bent á einföldustu leiðina til að hreinsa flíkina.

SNJALL MYNDASMIÐUR

Svona gerum við þegar gerum nýjan bíl

Er þetta ekki sænska leiðin? Ljósmyndarinn Erik Johansen er jafn sænskur og Volvo og IKEA. Smelltu á fyrirsögnina og Samúel kemur þér í snertingu við tengil inn á myndasyrpu myndahönnuðarins snjalla.

ENGA VÆMNI, TAKK!

Til að vega upp á móti væmninni ...

Til að vega aðeins upp á móti allri væmninni, sem helltist yfir okkur um Valentínusar-helgina, ákvað Samúel að tína til nokkra brandara sem flokkast engan veginn undir væmni. Smelltu á fyrirsögnina.

FRÁ BIÐSTOFU NEYÐARMÓTTÖKUNNAR

VINSÆLDALISTINN

Eminum á toppi Billboard listans

Eminem lætur sér ekki að nægja að Rihanna syngi með honum í nýjasta lagi hans, Love The Way You Lie, heldur skartar Megan Fox sýnu kynþokkafyllsta í vídeói sem gert hefur verið með laginu. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá vídeóið.   

TÆKNI OG VÍSINDI

Viltu kaupa far með geimskutlu?

Smelltu á fyrirsögnina til að komast inn á vefsíðu þar sem þú getur pantað far með Richard Bronson í Jómfrúarferð Virgin flugfélagsins út í geim. Verðið er aðeins kvart milljarður króna og drykkir um borð innifaldir í verði. Branson hóf rekstur árið sem Samúel hóf göngu sína. Gaman að sjá hvað hefur ræst úr strák.

HEIMSMYND

Tekur áhættuna

Í HEIMSMYND í dag sérðu meðal annars viðtal BBC við leikkonuna Angelinu Jolie um áhættuatriðin í kvikmyndinni Salt. Hún afþakkaði áhættuleikara. Smelltu á fyrirsögnina.

SAMÚEL KYNNIR

Fyrstu stúlkurnar

Hafin er kynning hér á Samúel.is á sex stúlkum af þeim tólf sem taka þátt í Samkeppninni 2010. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá upplýsingar um þær og allt er lítur að keppninni.

LJÓSMYNDIR

SNILLDARVERK

Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Taktu þér frí í vinnunni, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.

Þú last það í Samúel

Pressan birtir það besta úr Samúel

Þú getur farið á Pressan.is og skoðað þar það besta úr gamla góða Samúel. Daglega bætast við sýnishorn úr Samúel sem kom út óslitið frá 1969 til 1994. Núna getur þú til dæmis séð rifjað upp sitthvað úr viðtali við Rúna Júl frá 1984. Hann segir m.a. frá því þegar hann kynntist Jimi Hendrix á klóinu. Smelltu á fyrirsögnina.

TÖLVULEIKIR

Franz um 10 leiki

Franz Gunnarsson hefur prófað tíu tölvuleiki fyrir Samúel. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira.  

KVIKMYNDIR

Brot úr myndinni um Facebook ...

Loksins er komið almennilegt sýnishorn úr kvikmyndinni The Social Network, en hún segir frá ævintýrinu á bak við samskipta- síðuna Facebook. Á meðfylgj- andi ljósmynd má sjá Justin Timberlake og Jesse Eisenberg í hlutverkum sínum. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá sýnishornið.

UNDIR ÞRJÚ AUGU

Samúel komst yfir mynd frá kistulagningu McDonalds á Íslandi. Í sama myndasafni leyndust fleiri forvitnilegar myndir. Smelltu á broskarlinn hér fyrir ofan. Góða skemmtun.  

VÍDEÓ

20 SENUÞJÓFAR

Senuþjófurinn sem skaust inn á völlinn í leik Þýskalands og Spánar á HM fékk ekki eins mikla athylgi í sjónvarpi og þeir 20 sem, Samúel birtir vídeó af. Smelltu á fyrirsögnina.

RONNIE WOOD

LiSTMÁLARINN: Sjáðu myndirnar

Vissir þú að Ronnie Wood er mikls metinn listmálari og seljast málverk hans fyrir jafnvirði milljóntuga íslenskra króna. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndirnar.

KNATTSPYRNAN

Gana á heimsmet í mannskæðum boltaóeirðum ...

Hérlendis flokkast ljótur munn- söfnuður þjálfara knattspyrnuliðs undir óspektir. Hvað segið þið um það þegar sagt er frá láti 120 áhorfenda á knattspyrnuleik? Sjáðu upptalningu á 10 verstu atburðunum í sögu boltans.

HM STELPURNAR

Líkamsmálun og HM Í Suður-Afríku

Myndasyrpa sem einhverjum kunna að þykja áhugaverð. Í fyrsta lagi boltaunnendum, í öðru lagi áhugafólki um líkamsmálun og loks þeim sem kunna að meta fagurleggjaðar konur. Smelltu á fyrirsögnina - ef þú ert kominn í sumarfrí. Þetta er slatti af myndum.

HEIMSMYND

350 tilvísanir á spennandi efni

Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá tveimur síðustu mánuðum. Tónlistarvídeó, grín, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, flottar píur, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.

KVIKMYNDIR

Feta þau í spor Burton-hjónanna?

Angelina Jolie mun að öllum líkindum fara með hlutverk Kleópötru drottningar Egypta, sem Elísabet Taylor lék 1963. Segir sagan að Brad Pitt þyki hæfa vel í hlutverk, elskhuga drottningar, sem Burton lék á sínum tíma. Smelltu á fyrir- sögnina til að lesa meira.

LEIÐBEININGAR

DAÐURSDRÁP

Samúel hefur spurt stúlkurnar í Samkeppninni að því, hvaða pic-up línur séu þeim minnis- stæðastar. Þær hafa allar svarað spurningunni. Ein þeirra gerði betur en það, hún gaukaði að Samúel slatta af fyndnum tilsvörum sem nota má þegar áhugi er ekki fyrir hendi. Smelltu á fyrirsögnina.

GÓÐUR HÚMOR

Fyndin auglýsing

Snickers fær ókeypis birtingu á auglýsinga hér í Samúel sökum þess hve fyndin auglýsingin er. Smeltu á fyrirsögnina og sjáðu auglýsinguna sem valin var ein sú besta sem birtist í sjónvarpi í Bandaríkjunum á síðasta ári. 

Þú sást hana í Samúel

Þakkar myndum alla frægðina ...

Bandaríska fyrirsætan, söng- konan, lagahöfundurinn og leikkonan Vanessa Lynn Williams er orðin 47 ára. Hún var kjörin Ungfrú Ameríka 1979 en svipt titlinum þegar grafnar voru upp nektarmyndir af henni. Hún þakkar þessum yndum frama sinn í dag. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá þessa lögulegu leikkonu úr þáttunum um ljótu Bettý. 

AFMÆLISDAGABÓKIN

HÚN ER BARNA- BARN KÓNGSINS

Hún heitir Danielle Riley Keough og varð 21 árs um helgina. Það eru þó liðin sex ár siðan hún steig fyrst á sýningarpall. Smelltu á myndina tll að sjá hvort þér þyki hún líkjast afa sínum, rokk- kónginum ódauðlega. Smelltu svo á fyrirsögnina til að sjá lista Samúels yfitr tónlistarmenn, kynbombur, kónga og forseta sem fæddir voru 29. maí.

AFMÆLISDAGABÓKIN

Kravitz fjölhæfur

Það leika öll hljóðfæri í höndum tónlistarmannsins Lenny Kravitz og hann er jafn vígur á ólíkustu tegugundir tónlistar. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á eitt af hans gömlu góðu lögum og sjáðu líka hvernig hann græjar nýtt lag einn síns liðs í stúdíóinu sínu.

AFMÆLISSDAGABÓKIN

Ruslönu er ekki fisjað saman ...

Ruslönu er ekki fisjað saman. Kynntu þér málið um leið og þú hlýðir á eitt hressilegt með henni í anda lagsins sem færði henni sigur í Eurovision árið 2004. Dansað vð úlfa heitir lagið. Smelltu á fyrirsögnina.

AFMÆLISDAGABÓKIN

Nýr CD á leiðinni

Joe Cocker er hinn sprækasti þó aðeins vanti nú eitt ár upp á að hann komist á ellilífeyri. Hann er að ljúka við nýja plötu og aðeins liðið hálft annað ár frá þeirri síðustu. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á tvö gömul og góð með Íslandsvininum.

MISTÖK

Mistök í bíó ...

Mistök hafa verið gerð við töku stórmynda jafnt sem hinna ódýrari. Samúel rifjar upp nokkur mistök sem sjá má í frægum kvikmyndum. Smelltru á fyrirsögnina.

TÓNLIST

Donovan með nýja hljómplötu

Donovan var á meðal þeirra sem komu fram á Woodstock 1969. Hann var að gefa út smáskífu á dögunum til að gefa mönnum forsmekkinn af stórri plötu sem er væntanleg í sumarbyrjun. Smelltu á fyrirsögnina og rifjaðu upp öll eftirminnilegustu lög Donavans.

TÓNLIST

Steve Winwood og Eric Clapton

Þeir Steve Winwood og Eric Clapton stofnuðu súperbandið Blind Faith ásamt Ginger Baker og Ric Grace árið 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á þá Clapton og afmælisbarnið Winwood taka eitt af þeirra 40 ára gömlu lögum á hljómleikum fyrir aðeins þremur árum.

AF FRÆGUM

Simon bætir við fasteignasafn sitt

Idol-dómarinn Simon Cowell er einn fára auðmanna í heiminum sem hefur bætt fjármunum í fjárhirslur sínar að undanförnu þrátt fyrir heimskreppuna. Hann flutti fyrir fáeinum mánuðum í glæsileg híbýli í Los Angeles. Fínheitin kosta jafnvirði 2,8 milljarða íslenskra króna eftir að hann hefur á fjórum árum látið gera allt í stand nákvæmlega eftir sínu höfði. Fyrir á hann flottar húseignir út um allan heim. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira.  

TÓNLIST

Roger Waters með tvær plötur og Wall tónleika

Roger Waters, sem lauk hér tveggja ára tónleikaferð 2008 undir nafninu The Dark Side of the Moon, er með tvær plötur í burðarllðnum og leggur upp í nýja tónleikaferð í september undir nafniu The Wall Live. Á tónleikunum tekur hann alla Wall-plötuna. Hann er sem sé hinn sprækasti í rokkinu, orðinn 66 ára. Í fyrra veitti hann viðtöku merkum verðlaunum fyrir framlag til bæði dægurtónlistar og sígildrar tónlistar. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa, sjá og heyra.

TÓNLIST

Nelson og Norah

Sveitasöngvarinn, lagasmið- urinn, rithöfundurinn og ljóðskáldið Willie Nelson nálgast áttræðisaldurinn óðfluga en undirbýr samt af sama áhuga og áður enn eina tónleikaferðina. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu hann taka lagið með Noruh Jones.

TÓNLIST

ERIC BURDON MEÐ NÝTT BAND

Eric Burdon er með nýtt band á hljómleikaferð 64 ára gamall. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á hann syngja The House of the Rising Sun með hljómsveitinni Animals. Mikið skárra en söngur hans í dag að mati Samúels.

TÓNLIST

Skákaði Bítlunum í fyrstu tilraun ...

Engelbert Humperinck varð 74 ára i gær. Hann skákaði sjálfum Bítlunum með sínu fyrsta lagi árið 1967, en það seldist á smáskífu í metupplagi í Bretlandi það ár og komst í efsta sæti vinsældalista níu landa. Hann gerir út á lagið enn í dag og fyllir auðveldlega tónleikasali vestan hafs og austan. Smelltu á fyrirsögnina og rifjaðu upp lagið Release Me. Eitt vinsælasta vangalag sjöunda áratugarins.

KÍNVERSKU MERKIN

HVERNIG LÝSIR MERKIÐ ÞÉR?

Smelltu á fyrirsögnina til að sjá hvað kínverska stjörnuspekin segir um merkið þitt.

FERÐALÖG

BESTU SÖFNIN

Fjöldi listfræðinga var fenginn til að tilnefna tíu bestu söfn í heimi. Samúel birtir listann. Hefur þú séð eitthvert þessara safna? Kyrrlát stund á listasafni er andleg næring fyrir sálina.

TÓNLIST

Bocelli, Raggi, Cave, Coverdale

Fjölmargir söngvarar og hljóð- færaleikarar áttu afmæli 22. september auk Ragga Bjarna. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu listann yfir afmælisbörnin. Samúel kemur þér í snertingu við tengla inn á tónlistarvídeó með tónlistarfólkinu - og ljósmynda- syrpur af öðrum ...

TÓNLIST

Heilmikil tónlist

Ray Charles, Bruce Springsteen og Julio Iglesias eiga sama afmælisdag að ógleymdum djassistanum John Coltrone. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á tónlist þeirra í boði Samúels ...

ÍÞRÓTTIR

Getur líka sungið

Ein af þekktustu kynbombum Hollywood er hin sænska Karen Viktoria Silvstedt. Heilmikið fyrir augað og svo getur hún líka sungið sæmilega og hefur verið vinsæl í kvikmyndum og sjón- varpi. Smelltu á fyrirsögnina og kynntu þér málið nánar.

EINSTAKUR EINSTEIN

Heimsfrægur fugl

Við köllum snillinga gjarnan Einstein. Hér er páfagaukur sem verðskuldar vissulega það gælunafn. Hann kann yfir 200 orð, hljóð og stæla. Enda er hann orðinn frægasti fugl í heimi og er boðið í hvern frétta- og sjónvarpsþáttinn á fætur öðrum. Þetta verður þú að sjá og heyra.

PÆLINGAR

Til í makaskipti?

Skildu Jón Ásgeir og Ingibjörg vera til í makaskipti? Í því gæti falist góð tilbreyting samfara slökun eftir allan gauraganginn og þotulífið. Smelltu á fyrirsögn- ina til að lesa meira.