Spjallþáttakóngurinn Jay Leno á meira en 50 sport- og fornbíla. Þá geymir hann í þremur bílskúr- um, eða öllu heldur bílasölum, ásamt tugum mótorhjóla. Smelltu á fyrirsögnina og gefðu þér tíma til að fræðast um safnið sem þú heyrir Leno svo oft tala um á Skjá einum.
Franz Gunnarsson skrifar fyrir Samúel um tölvuleiki og tekur fyrst fyrir nýjasta James Bond-leikinn Quantum Of Solace sem kominn er til landsins á undan sjálfri kvikmyndinni. Franz var fullur efasemda um leikinn þegar hann settist við tölvuna til að prufukeyra hann.
BMW frumsýndi nýlega mjög sérstakan tilraunabíl, svo ekki sé meira sagt. Bíllinn, sem kallast GINA Light Visionary Model, er með annars konar yfirbyggingu en hefðbundnir bílar. Hönnuðum BMW var sagt að henda út öllu hefðbundnum viðmiðum í hönnun og komu þeir fram með bíl þar sem ekki er allt sem sýnist!
Á síðustu árum hefur sala á hárvörum fyrir herra vaxið gríðarlega. Karlmönnum er orðið umhugaðra um útlit sitt og ímynd og eru um leið orðnir kröfuharðari. Til að fræðast um hárvörur fyrir herra snéri Samúel sér til Óla Bogga, hjá hárgreiðslu- stofunni Solid, en hann hampar hárvörunum frá TIGI. Smelltu á fyrirsögnina og lestu leiðbeiningar Óla Bogga.
Sannur unnandi Bjöllunnar gömlu fargaði ekki þessu eðal farartæki. Sumir löppuðu upp á gamla uppáhaldið og aðrir breyttu Bjöllunni sinni í verðugan minnisvarða um gömlu góðu dagana. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu vídeó og fleirri ljósmyndir og af Bjöllunni (og rúgbrauðinu).
Njáll Gunnlaugsson ökukennari hefur gengið til liðs við Samúel og mun skrifa fyrir vefsíðuna um mótorhjól og bíla. Njáll er kunnur fyrir skrif sín um hvers konar mótorsport en hann var ritstjóri DV-bíla og tímaritsins Bílar og Sport og var um tíma formaður Bandalags íslenskra bilablaðamanna (BÍBB). Njáll er höfundur bókarinnar Akstur og umferð bifhjóla, sem er sú kennslubók í mótorhjólaakstri sem að allir styðjast við í dag, en hann er einnig höfundur bókarinnar Þá riðu hetjur um héröð, en sú bók greinir frá 100 ára sögu mótorhjólsins á Íslandi. Fyrsta grein Njáls fjallar um afar athyglisvert mótorhjól sem kemur á markaðinn í vor.
PM er nýtt og forvitnilegt einstaklingsfarartæki frá TOYOTA sem stígur skrefinu lengra í að persónugera bílinn. Það hefur verið komist þannig að orði um þetta farartæki, að það sé „klæðilegur“ einstaklingsbíll sem setur markið á einingu ökumanns og ökutækis. Sjáðu vídeóið. Þú munt vart trúa þínum eigin augum ...
Dead Space er hryllingsleikur af bestu gerð. Það skín í gegn að framleiðandinn hefur lagt mikinn metnað í að gera í senn fágaðan en hörkuspennandi leik. Lestu leikjarýni eftir Franz Gunnarsson og sjáðu trailer. Þar má heyra Sigur Rós að leik.
Kjötkveðjuhátíðin í Rio de Janeiro í ár var engu íburðarminni en þær fyrri þrátt fyrir efnahagsástandið. En það voru víðar haldnar skrautlegar samkomur en í Ríó. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá upplýsingar, vídeó og ljósmyndir.
Saints Row 2 er alls ekki fyrir unga spilara en þeir sem eru komnir með aldur ættu svo sannarlega að tryggja sér eintak hið fyrsta og demba sér í þennan bráð- skemmtilega og fjöruga heim sem einnig býður upp á fjöldaspilun fyrir allt að 12 manns. Þannig kemst Franz Gunnarsson að orði í grein sinni í Samúel eftir að hafa rýnt í leikinn ...
Samúel birtir þrjár uppskriftir að súpum sem Guðmundur Fannar Guðjónsson á heiðurinn að. Um er að ræða karrýkryddaða sjávarréttarsúpu (sjá mynd), gúllassúpu og graskerssúpu með graskersfræjum. Tær snilld að gæða sér á heitri súpu í vetrarkuldanum og myuna eftir að grípa með sér nýbakað brauð úr bakaríinu til að hafa með herlegheitunum. - LJÓSM.: ROBERT FRAGABANE
Gillzenagger er einn þekktasti einkaþjálfari landsins í dag. Hann svarar spurn- ingum lesenda Samúels um líkamsrækt og sitthvað fleira sem skiptir máli.
Vínrækt hefur verið stunduð í Pfalz-héraðinu í Þýskalandi alveg frá dögum Rómverja fyrir meira en 2000 árum. Þeir vissu að þar sem möndlu- og gráfíkjutré blómstruðu ætti vínviðurinn góða möguleika á að þroskast og bera ávöxt. Þeir fluttu því vínmenningu sína með sér til greifadæmanna þegar þeir lögðu landið undir sig og náðu fljótt góðum árangri við vínræktina vegna góðra skilyrða ...
Samúel hefur það eftir ekki ómerkari heimildum en Forbes.com að spjallþátta- kóngurinn Jay Leno eigi meira 50 sport- og fornbíla. Þá geymir hann í þremur bílskúrum, eða öllu heldur bílasölum, sem hvaða bílasala gæti verið stolt af. Þar inn á milli kemur hann svo mótorhjólunum sínum haganlega fyrir þar sem glufa gefst á svæðinu, en hjólin eru viðlíka mörg og bílarnir. Hér fyrir ofan má sjá Jay Leno stoltan í bílskúrnum við Buick Roadmaster. Ljósm.: John Lamm fyrir bílaþátt Jay Leno í Popular Mechanic. Smelltu á fyrirsögnina og gefðu þér góðan tíma til að fræðast um safn spjallþáttastjórnandans.
Eminem lætur sér ekki að nægja að Rihanna syngi með honum í nýjasta lagi hans, Love The Way You Lie, heldur skartar Megan Fox sýnu kynþokkafyllsta í vídeói sem gert hefur verið með laginu. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá vídeóið.
Smelltu á fyrirsögnina til að komast inn á vefsíðu þar sem þú getur pantað far með Richard Bronson í Jómfrúarferð Virgin flugfélagsins út í geim. Verðið er aðeins kvart milljarður króna og drykkir um borð innifaldir í verði. Branson hóf rekstur árið sem Samúel hóf göngu sína. Gaman að sjá hvað hefur ræst úr strák.
Í HEIMSMYND í dag sérðu meðal annars viðtal BBC við leikkonuna Angelinu Jolie um áhættuatriðin í kvikmyndinni Salt. Hún afþakkaði áhættuleikara. Smelltu á fyrirsögnina.
Hafin er kynning hér á Samúel.is á sex stúlkum af þeim tólf sem taka þátt í Samkeppninni 2010. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá upplýsingar um þær og allt er lítur að keppninni.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Taktu þér frí í vinnunni, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Þú getur farið á Pressan.is og skoðað þar það besta úr gamla góða Samúel. Daglega bætast við sýnishorn úr Samúel sem kom út óslitið frá 1969 til 1994. Núna getur þú til dæmis séð rifjað upp sitthvað úr viðtali við Rúna Júl frá 1984. Hann segir m.a. frá því þegar hann kynntist Jimi Hendrix á klóinu. Smelltu á fyrirsögnina.
Franz Gunnarsson hefur prófað tíu tölvuleiki fyrir Samúel. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira.
Loksins er komið almennilegt sýnishorn úr kvikmyndinni The Social Network, en hún segir frá ævintýrinu á bak við samskipta- síðuna Facebook. Á meðfylgj- andi ljósmynd má sjá Justin Timberlake og Jesse Eisenberg í hlutverkum sínum. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá sýnishornið.
Senuþjófurinn sem skaust inn á völlinn í leik Þýskalands og Spánar á HM fékk ekki eins mikla athylgi í sjónvarpi og þeir 20 sem, Samúel birtir vídeó af. Smelltu á fyrirsögnina.
Vissir þú að Ronnie Wood er mikls metinn listmálari og seljast málverk hans fyrir jafnvirði milljóntuga íslenskra króna. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndirnar.
Hérlendis flokkast ljótur munn- söfnuður þjálfara knattspyrnuliðs undir óspektir. Hvað segið þið um það þegar sagt er frá láti 120 áhorfenda á knattspyrnuleik? Sjáðu upptalningu á 10 verstu atburðunum í sögu boltans.
Myndasyrpa sem einhverjum kunna að þykja áhugaverð. Í fyrsta lagi boltaunnendum, í öðru lagi áhugafólki um líkamsmálun og loks þeim sem kunna að meta fagurleggjaðar konur. Smelltu á fyrirsögnina - ef þú ert kominn í sumarfrí. Þetta er slatti af myndum.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá tveimur síðustu mánuðum. Tónlistarvídeó, grín, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, flottar píur, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Angelina Jolie mun að öllum líkindum fara með hlutverk Kleópötru drottningar Egypta, sem Elísabet Taylor lék 1963. Segir sagan að Brad Pitt þyki hæfa vel í hlutverk, elskhuga drottningar, sem Burton lék á sínum tíma. Smelltu á fyrir- sögnina til að lesa meira.
Samúel hefur spurt stúlkurnar í Samkeppninni að því, hvaða pic-up línur séu þeim minnis- stæðastar. Þær hafa allar svarað spurningunni. Ein þeirra gerði betur en það, hún gaukaði að Samúel slatta af fyndnum tilsvörum sem nota má þegar áhugi er ekki fyrir hendi. Smelltu á fyrirsögnina.
Snickers fær ókeypis birtingu á auglýsinga hér í Samúel sökum þess hve fyndin auglýsingin er. Smeltu á fyrirsögnina og sjáðu auglýsinguna sem valin var ein sú besta sem birtist í sjónvarpi í Bandaríkjunum á síðasta ári.
Bandaríska fyrirsætan, söng- konan, lagahöfundurinn og leikkonan Vanessa Lynn Williams er orðin 47 ára. Hún var kjörin Ungfrú Ameríka 1979 en svipt titlinum þegar grafnar voru upp nektarmyndir af henni. Hún þakkar þessum yndum frama sinn í dag. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá þessa lögulegu leikkonu úr þáttunum um ljótu Bettý.
Hún heitir Danielle Riley Keough og varð 21 árs um helgina. Það eru þó liðin sex ár siðan hún steig fyrst á sýningarpall. Smelltu á myndina tll að sjá hvort þér þyki hún líkjast afa sínum, rokk- kónginum ódauðlega. Smelltu svo á fyrirsögnina til að sjá lista Samúels yfitr tónlistarmenn, kynbombur, kónga og forseta sem fæddir voru 29. maí.
Það leika öll hljóðfæri í höndum tónlistarmannsins Lenny Kravitz og hann er jafn vígur á ólíkustu tegugundir tónlistar. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á eitt af hans gömlu góðu lögum og sjáðu líka hvernig hann græjar nýtt lag einn síns liðs í stúdíóinu sínu.
Ruslönu er ekki fisjað saman. Kynntu þér málið um leið og þú hlýðir á eitt hressilegt með henni í anda lagsins sem færði henni sigur í Eurovision árið 2004. Dansað vð úlfa heitir lagið. Smelltu á fyrirsögnina.
Joe Cocker er hinn sprækasti þó aðeins vanti nú eitt ár upp á að hann komist á ellilífeyri. Hann er að ljúka við nýja plötu og aðeins liðið hálft annað ár frá þeirri síðustu. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á tvö gömul og góð með Íslandsvininum.
Mistök hafa verið gerð við töku stórmynda jafnt sem hinna ódýrari. Samúel rifjar upp nokkur mistök sem sjá má í frægum kvikmyndum. Smelltru á fyrirsögnina.
Donovan var á meðal þeirra sem komu fram á Woodstock 1969. Hann var að gefa út smáskífu á dögunum til að gefa mönnum forsmekkinn af stórri plötu sem er væntanleg í sumarbyrjun. Smelltu á fyrirsögnina og rifjaðu upp öll eftirminnilegustu lög Donavans.
Þeir Steve Winwood og Eric Clapton stofnuðu súperbandið Blind Faith ásamt Ginger Baker og Ric Grace árið 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á þá Clapton og afmælisbarnið Winwood taka eitt af þeirra 40 ára gömlu lögum á hljómleikum fyrir aðeins þremur árum.
Idol-dómarinn Simon Cowell er einn fára auðmanna í heiminum sem hefur bætt fjármunum í fjárhirslur sínar að undanförnu þrátt fyrir heimskreppuna. Hann flutti fyrir fáeinum mánuðum í glæsileg híbýli í Los Angeles. Fínheitin kosta jafnvirði 2,8 milljarða íslenskra króna eftir að hann hefur á fjórum árum látið gera allt í stand nákvæmlega eftir sínu höfði. Fyrir á hann flottar húseignir út um allan heim. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira.
Roger Waters, sem lauk hér tveggja ára tónleikaferð 2008 undir nafninu The Dark Side of the Moon, er með tvær plötur í burðarllðnum og leggur upp í nýja tónleikaferð í september undir nafniu The Wall Live. Á tónleikunum tekur hann alla Wall-plötuna. Hann er sem sé hinn sprækasti í rokkinu, orðinn 66 ára. Í fyrra veitti hann viðtöku merkum verðlaunum fyrir framlag til bæði dægurtónlistar og sígildrar tónlistar. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa, sjá og heyra.
Sveitasöngvarinn, lagasmið- urinn, rithöfundurinn og ljóðskáldið Willie Nelson nálgast áttræðisaldurinn óðfluga en undirbýr samt af sama áhuga og áður enn eina tónleikaferðina. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu hann taka lagið með Noruh Jones.
Eric Burdon er með nýtt band á hljómleikaferð 64 ára gamall. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á hann syngja The House of the Rising Sun með hljómsveitinni Animals. Mikið skárra en söngur hans í dag að mati Samúels.
Engelbert Humperinck varð 74 ára i gær. Hann skákaði sjálfum Bítlunum með sínu fyrsta lagi árið 1967, en það seldist á smáskífu í metupplagi í Bretlandi það ár og komst í efsta sæti vinsældalista níu landa. Hann gerir út á lagið enn í dag og fyllir auðveldlega tónleikasali vestan hafs og austan. Smelltu á fyrirsögnina og rifjaðu upp lagið Release Me. Eitt vinsælasta vangalag sjöunda áratugarins.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá hvað kínverska stjörnuspekin segir um merkið þitt.
Fjöldi listfræðinga var fenginn til að tilnefna tíu bestu söfn í heimi. Samúel birtir listann. Hefur þú séð eitthvert þessara safna? Kyrrlát stund á listasafni er andleg næring fyrir sálina.
Fjölmargir söngvarar og hljóð- færaleikarar áttu afmæli 22. september auk Ragga Bjarna. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu listann yfir afmælisbörnin. Samúel kemur þér í snertingu við tengla inn á tónlistarvídeó með tónlistarfólkinu - og ljósmynda- syrpur af öðrum ...
Ray Charles, Bruce Springsteen og Julio Iglesias eiga sama afmælisdag að ógleymdum djassistanum John Coltrone. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á tónlist þeirra í boði Samúels ...
Ein af þekktustu kynbombum Hollywood er hin sænska Karen Viktoria Silvstedt. Heilmikið fyrir augað og svo getur hún líka sungið sæmilega og hefur verið vinsæl í kvikmyndum og sjón- varpi. Smelltu á fyrirsögnina og kynntu þér málið nánar.
Við köllum snillinga gjarnan Einstein. Hér er páfagaukur sem verðskuldar vissulega það gælunafn. Hann kann yfir 200 orð, hljóð og stæla. Enda er hann orðinn frægasti fugl í heimi og er boðið í hvern frétta- og sjónvarpsþáttinn á fætur öðrum. Þetta verður þú að sjá og heyra.
Skildu Jón Ásgeir og Ingibjörg vera til í makaskipti? Í því gæti falist góð tilbreyting samfara slökun eftir allan gauraganginn og þotulífið. Smelltu á fyrirsögn- ina til að lesa meira.