FORSÍÐA JÓN ÁSGEIR MISSTI AF LINKENHOLTI
Hvernig skildi Jóni Ásgeiri og Ingibjörgu konu hans lítast á makaskipti? Í því gæti falist góð tilbreyting eftir allt þotulífið og gauraganginn. Samúel er búinn að finna heppilegan kost f yrir þau. Fréttir bárust í gær af því að lítið og sætt þorp að nafni Linkenholt væri til sölu með öllu tilheyr- andi. Baugshjónin gætu hugsanlega boðið lúxusþakíbúðina á Manhattan í makaskiptum.
Núna, þegar þeim hefur tekist að selja þotu sína snekkju, eiga þau helst í vandræðum með að losna við þessa 650 fermetra íbúð þar sem Kennedy og Jackie bjuggu á sínum tíma. Að vísu gerðu forsetahjónin sér þar heldur færri fermetra að góðu en stórgrósserinn. Ásett verð á íbúðina er um 3 milljarðar króna, en menn vilja helst fá um eða yfir 3,5 milljarða króna fyrir hið 2000 hektara land í Hampshire.
ÖNNUR BÍLSKÚRSSALA GRÆJAR MISMUNINN
Ef hinum slinga samningamanni, Jóni Ásgeiri, tækist ekki að fá verðið lækkað gæti hann einfaldlega haldið aðra bílskúrssölu í London eins og hann gerði um daginn. Þá seldi hann, sem kunnugt er, nokkuð af því fíneríi sem prýtt hafði skrifstofur hans í stórborginni. Þetta er fljótt að koma þegar hann getur t.d. selt stykkið af skrifstofustól á 32 þúsund krónur, en heildarverðmæti húsgagnanna á bílskúrssölunni um daginn svaraði til 2,4 milljarða íslenskra króna.
FUGLASÖNGUR Í STAÐINN FYRIR UMFERÐARNIÐ
Hugsaðu þér að vakna upp við fuglasöng í bresku smáþorpi í staðinn fyrir umferðar- nið í milljónaborginni New York. Það eru að vísu 17.300 veitingastaðir í stórborginni, en bara ein einasta krá í Linkenholti, en þú átt hana ef þú gengur að þeim díl sem fasteignasalan er að bjóða. Díllinn innifelur nefnilega allt nema kirkjuna, sem er frá 12. öld. Prestssetrið er hins vegar innifalið sem og klukkuturninn.
Annað sem er innifalið er 1.500 ekrur af ræktarlandi auk 450 fermetrar skóglendis, tvær járnsmiðjur, krikketvöllur og 22 íbúðarhús þar sem búa um 60 manns. Er búist við því að þeir vilji leigja þar áfram. Svo má ekki gleyma því að með í kaupunum fylgir pínulítil verslun með helstu nauðsynjar. Þar getur Bónusforstjórinn dúllað sér á daginn ef honum leiðist.
Þorpið er í eigu góðgerðarsjóðs, sem komið var álaggirnar fyrir auð kappreiða- knapa, sem ánafnaði auð sinn öldruðum, veikum börnum og meiddum knöpum. Sjóðurinn hefur nú falið fasteignasölu að auglýsa þorpið til sölu í lok þessarar viku. Fyrir andvirðið á að koma upp nýju þorpi frá grunni annars staðar.
GÆTU HÝST ALLA ÍBÚA TÍU MINNSTU SVEITARFÉLAGANNA
Samúel hefur verið að pæla í því hvernig Jón Ásgeir og Ingibjörg gætu fjárfest ef þeim tekst að selja þakíbúðina í New York fyrir þrjá milljarða og kærðu sig ekki um að gerast þorparar í Bretlandi.
Það þarf ekki mikla samningamenn til að koma verði á rúmgóðri íbúð í Reykjavík í 21 milljón króna. Hvað þá ef við erum að tala um eitthvað í kringum 140 íbúðir alls. Skárra væri það nú. Sæmilegur afsláttur er borðliggjandi. Hvað þá ef um stað- greiðslu væri að ræða.
Gengið er út frá því að á hverju heimili búi um 3,7 íbúar. Fjölbýlishúsahverfið í höfuðborginni, sem Samúel er að sjá fyrir sér, hýsti því eitthvað í kringum 525 íbúa. Það þýðir að þangað gætu flutt allir íbúar Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Nú eða allir íbúar tíu minnstu sveitarfélaganna á Íslandi í dag.
Hefur þú áhuga á að kaupa þakíbúðina. Nánari upplýsingar HÉR
Eminem lætur sér ekki að nægja að Rihanna syngi með honum í nýjasta lagi hans, Love The Way You Lie, heldur skartar Megan Fox sýnu kynþokkafyllsta í vídeói sem gert hefur verið með laginu. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá vídeóið.
Smelltu á fyrirsögnina til að komast inn á vefsíðu þar sem þú getur pantað far með Richard Bronson í Jómfrúarferð Virgin flugfélagsins út í geim. Verðið er aðeins kvart milljarður króna og drykkir um borð innifaldir í verði. Branson hóf rekstur árið sem Samúel hóf göngu sína. Gaman að sjá hvað hefur ræst úr strák.
Í HEIMSMYND í dag sérðu meðal annars viðtal BBC við leikkonuna Angelinu Jolie um áhættuatriðin í kvikmyndinni Salt. Hún afþakkaði áhættuleikara. Smelltu á fyrirsögnina.
Hafin er kynning hér á Samúel.is á sex stúlkum af þeim tólf sem taka þátt í Samkeppninni 2010. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá upplýsingar um þær og allt er lítur að keppninni.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Taktu þér frí í vinnunni, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Þú getur farið á Pressan.is og skoðað þar það besta úr gamla góða Samúel. Daglega bætast við sýnishorn úr Samúel sem kom út óslitið frá 1969 til 1994. Núna getur þú til dæmis séð rifjað upp sitthvað úr viðtali við Rúna Júl frá 1984. Hann segir m.a. frá því þegar hann kynntist Jimi Hendrix á klóinu. Smelltu á fyrirsögnina.
Franz Gunnarsson hefur prófað tíu tölvuleiki fyrir Samúel. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira.
Loksins er komið almennilegt sýnishorn úr kvikmyndinni The Social Network, en hún segir frá ævintýrinu á bak við samskipta- síðuna Facebook. Á meðfylgj- andi ljósmynd má sjá Justin Timberlake og Jesse Eisenberg í hlutverkum sínum. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá sýnishornið.
Senuþjófurinn sem skaust inn á völlinn í leik Þýskalands og Spánar á HM fékk ekki eins mikla athylgi í sjónvarpi og þeir 20 sem, Samúel birtir vídeó af. Smelltu á fyrirsögnina.
Vissir þú að Ronnie Wood er mikls metinn listmálari og seljast málverk hans fyrir jafnvirði milljóntuga íslenskra króna. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndirnar.
Hérlendis flokkast ljótur munn- söfnuður þjálfara knattspyrnuliðs undir óspektir. Hvað segið þið um það þegar sagt er frá láti 120 áhorfenda á knattspyrnuleik? Sjáðu upptalningu á 10 verstu atburðunum í sögu boltans.
Myndasyrpa sem einhverjum kunna að þykja áhugaverð. Í fyrsta lagi boltaunnendum, í öðru lagi áhugafólki um líkamsmálun og loks þeim sem kunna að meta fagurleggjaðar konur. Smelltu á fyrirsögnina - ef þú ert kominn í sumarfrí. Þetta er slatti af myndum.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá tveimur síðustu mánuðum. Tónlistarvídeó, grín, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, flottar píur, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Angelina Jolie mun að öllum líkindum fara með hlutverk Kleópötru drottningar Egypta, sem Elísabet Taylor lék 1963. Segir sagan að Brad Pitt þyki hæfa vel í hlutverk, elskhuga drottningar, sem Burton lék á sínum tíma. Smelltu á fyrir- sögnina til að lesa meira.
Samúel hefur spurt stúlkurnar í Samkeppninni að því, hvaða pic-up línur séu þeim minnis- stæðastar. Þær hafa allar svarað spurningunni. Ein þeirra gerði betur en það, hún gaukaði að Samúel slatta af fyndnum tilsvörum sem nota má þegar áhugi er ekki fyrir hendi. Smelltu á fyrirsögnina.
Snickers fær ókeypis birtingu á auglýsinga hér í Samúel sökum þess hve fyndin auglýsingin er. Smeltu á fyrirsögnina og sjáðu auglýsinguna sem valin var ein sú besta sem birtist í sjónvarpi í Bandaríkjunum á síðasta ári.
Bandaríska fyrirsætan, söng- konan, lagahöfundurinn og leikkonan Vanessa Lynn Williams er orðin 47 ára. Hún var kjörin Ungfrú Ameríka 1979 en svipt titlinum þegar grafnar voru upp nektarmyndir af henni. Hún þakkar þessum yndum frama sinn í dag. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá þessa lögulegu leikkonu úr þáttunum um ljótu Bettý.
Hún heitir Danielle Riley Keough og varð 21 árs um helgina. Það eru þó liðin sex ár siðan hún steig fyrst á sýningarpall. Smelltu á myndina tll að sjá hvort þér þyki hún líkjast afa sínum, rokk- kónginum ódauðlega. Smelltu svo á fyrirsögnina til að sjá lista Samúels yfitr tónlistarmenn, kynbombur, kónga og forseta sem fæddir voru 29. maí.
Það leika öll hljóðfæri í höndum tónlistarmannsins Lenny Kravitz og hann er jafn vígur á ólíkustu tegugundir tónlistar. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á eitt af hans gömlu góðu lögum og sjáðu líka hvernig hann græjar nýtt lag einn síns liðs í stúdíóinu sínu.
Ruslönu er ekki fisjað saman. Kynntu þér málið um leið og þú hlýðir á eitt hressilegt með henni í anda lagsins sem færði henni sigur í Eurovision árið 2004. Dansað vð úlfa heitir lagið. Smelltu á fyrirsögnina.
Joe Cocker er hinn sprækasti þó aðeins vanti nú eitt ár upp á að hann komist á ellilífeyri. Hann er að ljúka við nýja plötu og aðeins liðið hálft annað ár frá þeirri síðustu. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á tvö gömul og góð með Íslandsvininum.
Mistök hafa verið gerð við töku stórmynda jafnt sem hinna ódýrari. Samúel rifjar upp nokkur mistök sem sjá má í frægum kvikmyndum. Smelltru á fyrirsögnina.
Donovan var á meðal þeirra sem komu fram á Woodstock 1969. Hann var að gefa út smáskífu á dögunum til að gefa mönnum forsmekkinn af stórri plötu sem er væntanleg í sumarbyrjun. Smelltu á fyrirsögnina og rifjaðu upp öll eftirminnilegustu lög Donavans.
Þeir Steve Winwood og Eric Clapton stofnuðu súperbandið Blind Faith ásamt Ginger Baker og Ric Grace árið 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á þá Clapton og afmælisbarnið Winwood taka eitt af þeirra 40 ára gömlu lögum á hljómleikum fyrir aðeins þremur árum.
Idol-dómarinn Simon Cowell er einn fára auðmanna í heiminum sem hefur bætt fjármunum í fjárhirslur sínar að undanförnu þrátt fyrir heimskreppuna. Hann flutti fyrir fáeinum mánuðum í glæsileg híbýli í Los Angeles. Fínheitin kosta jafnvirði 2,8 milljarða íslenskra króna eftir að hann hefur á fjórum árum látið gera allt í stand nákvæmlega eftir sínu höfði. Fyrir á hann flottar húseignir út um allan heim. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira.
Roger Waters, sem lauk hér tveggja ára tónleikaferð 2008 undir nafninu The Dark Side of the Moon, er með tvær plötur í burðarllðnum og leggur upp í nýja tónleikaferð í september undir nafniu The Wall Live. Á tónleikunum tekur hann alla Wall-plötuna. Hann er sem sé hinn sprækasti í rokkinu, orðinn 66 ára. Í fyrra veitti hann viðtöku merkum verðlaunum fyrir framlag til bæði dægurtónlistar og sígildrar tónlistar. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa, sjá og heyra.
Sveitasöngvarinn, lagasmið- urinn, rithöfundurinn og ljóðskáldið Willie Nelson nálgast áttræðisaldurinn óðfluga en undirbýr samt af sama áhuga og áður enn eina tónleikaferðina. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu hann taka lagið með Noruh Jones.
Eric Burdon er með nýtt band á hljómleikaferð 64 ára gamall. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á hann syngja The House of the Rising Sun með hljómsveitinni Animals. Mikið skárra en söngur hans í dag að mati Samúels.
Engelbert Humperinck varð 74 ára i gær. Hann skákaði sjálfum Bítlunum með sínu fyrsta lagi árið 1967, en það seldist á smáskífu í metupplagi í Bretlandi það ár og komst í efsta sæti vinsældalista níu landa. Hann gerir út á lagið enn í dag og fyllir auðveldlega tónleikasali vestan hafs og austan. Smelltu á fyrirsögnina og rifjaðu upp lagið Release Me. Eitt vinsælasta vangalag sjöunda áratugarins.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá hvað kínverska stjörnuspekin segir um merkið þitt.
Fjöldi listfræðinga var fenginn til að tilnefna tíu bestu söfn í heimi. Samúel birtir listann. Hefur þú séð eitthvert þessara safna? Kyrrlát stund á listasafni er andleg næring fyrir sálina.
Fjölmargir söngvarar og hljóð- færaleikarar áttu afmæli 22. september auk Ragga Bjarna. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu listann yfir afmælisbörnin. Samúel kemur þér í snertingu við tengla inn á tónlistarvídeó með tónlistarfólkinu - og ljósmynda- syrpur af öðrum ...
Ray Charles, Bruce Springsteen og Julio Iglesias eiga sama afmælisdag að ógleymdum djassistanum John Coltrone. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á tónlist þeirra í boði Samúels ...
Ein af þekktustu kynbombum Hollywood er hin sænska Karen Viktoria Silvstedt. Heilmikið fyrir augað og svo getur hún líka sungið sæmilega og hefur verið vinsæl í kvikmyndum og sjón- varpi. Smelltu á fyrirsögnina og kynntu þér málið nánar.
Við köllum snillinga gjarnan Einstein. Hér er páfagaukur sem verðskuldar vissulega það gælunafn. Hann kann yfir 200 orð, hljóð og stæla. Enda er hann orðinn frægasti fugl í heimi og er boðið í hvern frétta- og sjónvarpsþáttinn á fætur öðrum. Þetta verður þú að sjá og heyra.
Skildu Jón Ásgeir og Ingibjörg vera til í makaskipti? Í því gæti falist góð tilbreyting samfara slökun eftir allan gauraganginn og þotulífið. Smelltu á fyrirsögn- ina til að lesa meira.