Píurnar | Tónleikar | 23. júlí 2009 16:09

ÞÆR ELDAST VEL, VINKONUR SAMÚELS!

Þannig birtist Stella á forsíðu Samúels fyrir sléttum 30 árum.

Stella er áreiðanlega eini kvenmað- urinn sem hefur orðið þess heiðurs aðnjótandi að birtast á tveimur forsíðum Samúel í röð. Mánuði eftir að myndin af henni með rjómatertuna birtist á forsíðu var hún komin fitt í æfingagalla frá Dance Centre á forsíðu tímartsins á ný.

Stella í æfingalla frá Dance Centre í myndasyrpu Samúels. Með henni er önnur þekkt úr Módel 79, Brynja Norðquist, sem í dag er gift Þórhalli Guðmundssyni hershöfðingja á RUV. Myndatakan fór að sjálfsögðu fram í Hollywood.

Stella í óhefðbundinni útgáfu af íslenska þjóðbúningnum í Tokyo.

Vinkonur Samúels eldast vissulega vel. Í tilefni af því að 40 ár eru frá því Samúel hóf göngu sína leitar hann nú að fyrirsætum fyrri ára sem og kepp- endunum í Hollywood-keppninni og fleiri slíkum keppnum sem hann gekkst fyrir. Ljósm.: Arnold

Fimmurnar forðum. T.v.: Sigrún Harðardóttir, Kristín Helgadóttir, Stella Kristinsdóttir, Jóhanna Jóhannsdóttir og Fjóla Marinósdóttir.

Þessa mynd tók Stella af vinkonunum þegar þær Fimmurnar dönsuðu í sjónvarpssal.

Þessa mynd af Stellu tók Arnold Björns- son fyrir fáeinum dögum. Það er kreppa, svo engin er tertan, en Stella er alltaf jafn flott og það þótti okkur vera fyrir öllu. Stella ber skart hannað af Helgu Jónsdótt- ur gullsmiði í Gullkúnst, Laugavegi 13. Hár og förðun önnuðust Ásgeir og Begga í Dark Supernova, Laugavegi 40. Smelltu á myndina til að skoða hana betur.
Þegar Samúel fagnaði 10 ára afmæli sínu sumarið 1979 var splæst í rjómatertu og stormað í ljósmyndastúdíóið Ímynd við Hverfisgötu. Þar myndaði Guðmundur Ingólfsson tertuna í höndum Stellu Krist- insdóttur, sýningarstúlku úr Módel 79 og fulltrúa Íslands í keppninni Miss Young International það ár. Núna, þrjátíu áum síðar, þótti Samúel tilvalið að fá Stellu á nýjan leik í myndatöku.

 

Til að láta ljósmynda Stellu kaus Samúel að leita til umtalaðasta skvísuljósmyndarans um þessar mundir, Arnolds Björnssonar sem á m.a. heiðurinn af þeim eðalmyndum sem búlgarska útgafa tímaritsins Maxim birti nýverið af Ásdísi Rán bæði á forsíðu og á ófáum innsíðum. Um hár og förðun sáu þau Ásgeir Hjartarson og Bergþóra Þórsdóttir, sem reka Dark Supernova, Laugavegi 40. Bæði eru þau hárgreiðslumeistarar auk þess sem Begga er listförðunarfræðingur og bíður upp á airbrush-förðun. Segjum nánar frá þeim á næstu dögum.

 

LIÐTÆK SÝNINGARSTÚLKA


Samúel kom auga á Stellu í hópi sýningarstúlkna Módel 79 sem stigu á svið þegar unnendur skemmtistaðarins Hollywood efndu til 80’s endurfunda á Broadway í vor. 

Ein af lopaauglýsingunum með Stellu.
Þá kviknaði samstundis sú hugmynd að kanna hvort Stella væri ennþá eins liðtæk í ljósmyndastúdíóinu og hún reyndist vera í tískusýningunni þarna um kvöldið.

   Stella var á meðal stofnenda Módel 79, en hafði áður starfað með Módelsamtök- unum hjá Unni Arngríms. Henni bauðst líka að starfa hjá fyrirsætuumboði á Barce- lona, en afþakkaði það boð og segist oft sjá eftir því. Til Spánar fór hún þó eitt sinn til fyrirsætustarfa. Það var fyrir sjónvarpsauglýsingu sem Ingólfur Guðbrandsson lét gera fyrir ferðaskrifstofu sína Útsýn.

  Af öðrum verkefnum minnist Stella m.a. sjónvarpsauglýsingar fyrir Nescafé og svo fjölmargra fyrirsætustarfa fyrir bæði Álafoss og Lesprjón, sem gáfu iðulega út á þessum árum heilu myndabæklingana fyrir lopavörur og dreifðu þeim í stórum stíl til viðskiptavina erlendis. Árið 1979 var sérlega annasamt að sögn Stellu og lauk því með þátttöku hennar í áramótaskaupi Sjónvarpsins.

 

Stella (önnur frá hægri í efstu röð) er hér í hópi stúlkna í Módel 79 sem höfðu allar verið full- trúar Íslands í fegurðarsamkeppni erlendis. Myndina tók Magnus Hjörleifsson á Hótel Holti fyrir Lúxus (tímarit Samúels) árið 1985.
STALST ÚT Á LÍFIÐ Í TOKYO

 

„Eftirminnilegast frá 1979 verður tvímæla- laust það ævintýri að fara til Tokyo og taka þar þátt í Miss Young International,” segir Stella. „Ég fór þangað alein. Fór fyrst til Parísar þar sem ég var í sólarhring og bættist í hóp fleiri stúlkna sem voru á leið til þátttöku í keppninni. Það var stórkostlegt að skoða sig um í Tokyo og sömuleiðis í Kioto. Við stúlk- urnar komum víða fram og þá     á einkum í skemmtigörðum.

  Það var stjanað við okkur og kappkostað að við nytum dvalarinnar sem best, en okkur var harðbannað að fara um án leiðsögumanna, sem gegndu vitaskuld líka hlutverki eftirlitsmanna. Við stálumst þó út á lífið nokkrar stelpur eitt kvöldið. Ég skal viðurkenna að ég var með hnút í maganum allan tíman, en við skemmtum okkur rosalega vel og áfallaust.”

 

MÆTTI OFT FORFALLALAUST Í HOLYWOOD FJÖGUR KVÖLD Í RÖÐ

 

Stella á þrjá bræður og fjóra syni - en hvorki systir eða dóttur. Ljósm.: Arnold
Stella er uppalin í Safamýrinni og er Framm- ari. Hún gekk í Álftamýraskóla og fór síðan í Fjölbraut í Breiðholti. Hún er yngst fjögurra systkina, á þrjá bræður sem á þessum árum voru síðhærðir og fíluðu Rolling Stones í botn.

   Á skólaárunum stundaði Stella íþróttir af krafti og var m.a. gerð út af sínum skóla til að keppa í fjölþraut á íþróttamóti sem haldið var á Laugarvatni. Hún komst þar í annað sæti. Síðan fékk hún útrás í danslistinni. Lærði dans ásamt fjórum vinkonum sínum hjá Heiðari Ástvaldssyni og sýndu þær vinkon- urnar oft á Hótel Sögu. Þær voru býsna góðar. Til marks um það eru Íslandsmeist- aratitlar í hópdansi sem þær unnu til þrjú ár í röð.

   Diskótónlistin var að hefja innreið sína um það leiti sem stelpnaklíkan fimmurnar fóru að stunda skemmtistaðina. „Við fórum á Óðal, sem þá var diskótek, vel að merkja,” rifjar Stella upp. „Svo var Klúbburinn líka vinsæll. En oftast var það Hollywood og var oft mætt þangað forfallalaust fjóra daga í röð: fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag. Og það var sko dansað út í eitt, því máttu trúa!

   Á þessum árum hlustaði ég einkum á Barry White, Michael Jackson, Gloriu Gaynor, Bacchara og Sister Sledge,” heldur Stella áfram og bætir því við að þær fimmurnar hafi gjarnan kallað sig Nólan Systur. Hún segist ekki hlusta mikið á diskótónlistina í dag. Hún hlusti aðallega á FM 95,7.

Stella ásamt þremur vinkonum sínum í Módel 79. Myndin var tekin er þær mættu á æfingu fyrir Hollywood-kvöldið í vor. Ljósm.: ÞJM
   „En það var virkilega gaman að rifja diskó- tímabilið upp fyrir Hollyballið um daginn. Fötin, maður … legghlífar, ennisbönd og catshutt jakki yfir … ég fékk lánaðan jakka- fatajakka af pabba. Bretti bara upp á ermarn- ar… Annars var ég aðallega í gallabuxum og gallajakka á þessum árum. Ég var líka með glossið alveg á hreinu. Held raunar, svona eftir á að hyggja, að ég kunni að hafa ofnotað það.”

   En ekki ofnotaði hún áfengi. Hún rifjar upp að þær fimmurnar hafi farið saman á Laugar- vatn um verslunarmannahelgi eitt árið og haft með sér eina litla vínflösku. „Við vorum hressar allan tímann og komum heim með afgang af víninu.” Að þessu sögðu lýsti Stella áhyggjum sínum af sívaxandi fíkni- efnanotkun ungs fólks í dag. Úrvalið sé gífurlegt og það sé ekkert mál að komast yfir hættuleg efni. Það hljóti að vera öllum foreldrum mikið áhyggjuefni.

 

FJÖGURRA DRENGJA MÓÐIR

 

Stella á fjóra snilldardrengi, eins og hún kallar þá. „Faðirinn? Ég kynntist honum þegar ég var sautján ára og flutti til hans í Kópavog tveimur árum síðar. Ég var heimavinnandi á meðan drengirnir okkar voru ungir. Tveir þeir yngstu eru enn á heimilinu,” segir Stella. Hún skildi fyrir fimm árum, en býr enn í Kópavogi.

   Þegar Samúel spyr hana að því hvað hún hefði viljað eiga á sínum yngri árum, sem synirnir njóta nú, svarar hún umhugsunarlaust: „Ég hefði viljað eiga farsíma. Hann er bráðsnjöll uppfinning. Gott að geta alltaf náð símsambandi við fólkið sitt hvar sem maður er staddur í stað þess að þurfa alltaf að hendast í næstu sjoppu til að fá að hringja.”

 

ER AÐAL HJÁ KENNARASAMBANDINU, EÐA ÞANNIG ...

 

Stella vinnur í dag hjá Kennarasambandi Íslands. Þegar Samúel spyr að stöðuheiti svarar hún hiklaust: “Ég er eiginlega aðal manneskja þar!” Dregur svo strax í land. Segist vera svona alt mugligt manneskja þar á bæ. „Ég kokka ofan í mannskapinn, sel auglýsngar í Skólavörðuna, svara í samann ef með þarf og sinni garðyrkju- störfunum. Svo planta ég líka niður blómum kringum húsið, enda með græna fingur. Mér þykja garðyrkjustörf ekki leiðinleg.”

   Að lokum spyr Samúel Stellu að því hver sé árangursríkasta leiðin til að halda í æskuljómann sem lengst. „Tja, ætli það sé ekki vænlegast til árangurs að gera það sem manni finnst skemmtilegt. Vera kátur og glaður … og hæfilega kærulaus. Foreldrar mínir eru enn eins og táningar. Ég er að vona að mér hafi verið úthlutað ótæpilega af þeirra genum.”

 

AFTUR Á FORSÍÐU

 

VINSÆLDALISTINN

Eminum á toppi Billboard listans

Eminem lætur sér ekki að nægja að Rihanna syngi með honum í nýjasta lagi hans, Love The Way You Lie, heldur skartar Megan Fox sýnu kynþokkafyllsta í vídeói sem gert hefur verið með laginu. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá vídeóið.   

TÆKNI OG VÍSINDI

Viltu kaupa far með geimskutlu?

Smelltu á fyrirsögnina til að komast inn á vefsíðu þar sem þú getur pantað far með Richard Bronson í Jómfrúarferð Virgin flugfélagsins út í geim. Verðið er aðeins kvart milljarður króna og drykkir um borð innifaldir í verði. Branson hóf rekstur árið sem Samúel hóf göngu sína. Gaman að sjá hvað hefur ræst úr strák.

HEIMSMYND

Tekur áhættuna

Í HEIMSMYND í dag sérðu meðal annars viðtal BBC við leikkonuna Angelinu Jolie um áhættuatriðin í kvikmyndinni Salt. Hún afþakkaði áhættuleikara. Smelltu á fyrirsögnina.

SAMÚEL KYNNIR

Fyrstu stúlkurnar

Hafin er kynning hér á Samúel.is á sex stúlkum af þeim tólf sem taka þátt í Samkeppninni 2010. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá upplýsingar um þær og allt er lítur að keppninni.

LJÓSMYNDIR

SNILLDARVERK

Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Taktu þér frí í vinnunni, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.

Þú last það í Samúel

Pressan birtir það besta úr Samúel

Þú getur farið á Pressan.is og skoðað þar það besta úr gamla góða Samúel. Daglega bætast við sýnishorn úr Samúel sem kom út óslitið frá 1969 til 1994. Núna getur þú til dæmis séð rifjað upp sitthvað úr viðtali við Rúna Júl frá 1984. Hann segir m.a. frá því þegar hann kynntist Jimi Hendrix á klóinu. Smelltu á fyrirsögnina.

TÖLVULEIKIR

Franz um 10 leiki

Franz Gunnarsson hefur prófað tíu tölvuleiki fyrir Samúel. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira.  

KVIKMYNDIR

Brot úr myndinni um Facebook ...

Loksins er komið almennilegt sýnishorn úr kvikmyndinni The Social Network, en hún segir frá ævintýrinu á bak við samskipta- síðuna Facebook. Á meðfylgj- andi ljósmynd má sjá Justin Timberlake og Jesse Eisenberg í hlutverkum sínum. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá sýnishornið.

UNDIR ÞRJÚ AUGU

Samúel komst yfir mynd frá kistulagningu McDonalds á Íslandi. Í sama myndasafni leyndust fleiri forvitnilegar myndir. Smelltu á broskarlinn hér fyrir ofan. Góða skemmtun.  

VÍDEÓ

20 SENUÞJÓFAR

Senuþjófurinn sem skaust inn á völlinn í leik Þýskalands og Spánar á HM fékk ekki eins mikla athylgi í sjónvarpi og þeir 20 sem, Samúel birtir vídeó af. Smelltu á fyrirsögnina.

RONNIE WOOD

LiSTMÁLARINN: Sjáðu myndirnar

Vissir þú að Ronnie Wood er mikls metinn listmálari og seljast málverk hans fyrir jafnvirði milljóntuga íslenskra króna. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndirnar.

KNATTSPYRNAN

Gana á heimsmet í mannskæðum boltaóeirðum ...

Hérlendis flokkast ljótur munn- söfnuður þjálfara knattspyrnuliðs undir óspektir. Hvað segið þið um það þegar sagt er frá láti 120 áhorfenda á knattspyrnuleik? Sjáðu upptalningu á 10 verstu atburðunum í sögu boltans.

HM STELPURNAR

Líkamsmálun og HM Í Suður-Afríku

Myndasyrpa sem einhverjum kunna að þykja áhugaverð. Í fyrsta lagi boltaunnendum, í öðru lagi áhugafólki um líkamsmálun og loks þeim sem kunna að meta fagurleggjaðar konur. Smelltu á fyrirsögnina - ef þú ert kominn í sumarfrí. Þetta er slatti af myndum.

HEIMSMYND

350 tilvísanir á spennandi efni

Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá tveimur síðustu mánuðum. Tónlistarvídeó, grín, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, flottar píur, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.

KVIKMYNDIR

Feta þau í spor Burton-hjónanna?

Angelina Jolie mun að öllum líkindum fara með hlutverk Kleópötru drottningar Egypta, sem Elísabet Taylor lék 1963. Segir sagan að Brad Pitt þyki hæfa vel í hlutverk, elskhuga drottningar, sem Burton lék á sínum tíma. Smelltu á fyrir- sögnina til að lesa meira.

LEIÐBEININGAR

DAÐURSDRÁP

Samúel hefur spurt stúlkurnar í Samkeppninni að því, hvaða pic-up línur séu þeim minnis- stæðastar. Þær hafa allar svarað spurningunni. Ein þeirra gerði betur en það, hún gaukaði að Samúel slatta af fyndnum tilsvörum sem nota má þegar áhugi er ekki fyrir hendi. Smelltu á fyrirsögnina.

GÓÐUR HÚMOR

Fyndin auglýsing

Snickers fær ókeypis birtingu á auglýsinga hér í Samúel sökum þess hve fyndin auglýsingin er. Smeltu á fyrirsögnina og sjáðu auglýsinguna sem valin var ein sú besta sem birtist í sjónvarpi í Bandaríkjunum á síðasta ári. 

Þú sást hana í Samúel

Þakkar myndum alla frægðina ...

Bandaríska fyrirsætan, söng- konan, lagahöfundurinn og leikkonan Vanessa Lynn Williams er orðin 47 ára. Hún var kjörin Ungfrú Ameríka 1979 en svipt titlinum þegar grafnar voru upp nektarmyndir af henni. Hún þakkar þessum yndum frama sinn í dag. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá þessa lögulegu leikkonu úr þáttunum um ljótu Bettý. 

AFMÆLISDAGABÓKIN

HÚN ER BARNA- BARN KÓNGSINS

Hún heitir Danielle Riley Keough og varð 21 árs um helgina. Það eru þó liðin sex ár siðan hún steig fyrst á sýningarpall. Smelltu á myndina tll að sjá hvort þér þyki hún líkjast afa sínum, rokk- kónginum ódauðlega. Smelltu svo á fyrirsögnina til að sjá lista Samúels yfitr tónlistarmenn, kynbombur, kónga og forseta sem fæddir voru 29. maí.

AFMÆLISDAGABÓKIN

Kravitz fjölhæfur

Það leika öll hljóðfæri í höndum tónlistarmannsins Lenny Kravitz og hann er jafn vígur á ólíkustu tegugundir tónlistar. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á eitt af hans gömlu góðu lögum og sjáðu líka hvernig hann græjar nýtt lag einn síns liðs í stúdíóinu sínu.

AFMÆLISSDAGABÓKIN

Ruslönu er ekki fisjað saman ...

Ruslönu er ekki fisjað saman. Kynntu þér málið um leið og þú hlýðir á eitt hressilegt með henni í anda lagsins sem færði henni sigur í Eurovision árið 2004. Dansað vð úlfa heitir lagið. Smelltu á fyrirsögnina.

AFMÆLISDAGABÓKIN

Nýr CD á leiðinni

Joe Cocker er hinn sprækasti þó aðeins vanti nú eitt ár upp á að hann komist á ellilífeyri. Hann er að ljúka við nýja plötu og aðeins liðið hálft annað ár frá þeirri síðustu. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á tvö gömul og góð með Íslandsvininum.

MISTÖK

Mistök í bíó ...

Mistök hafa verið gerð við töku stórmynda jafnt sem hinna ódýrari. Samúel rifjar upp nokkur mistök sem sjá má í frægum kvikmyndum. Smelltru á fyrirsögnina.

TÓNLIST

Donovan með nýja hljómplötu

Donovan var á meðal þeirra sem komu fram á Woodstock 1969. Hann var að gefa út smáskífu á dögunum til að gefa mönnum forsmekkinn af stórri plötu sem er væntanleg í sumarbyrjun. Smelltu á fyrirsögnina og rifjaðu upp öll eftirminnilegustu lög Donavans.

TÓNLIST

Steve Winwood og Eric Clapton

Þeir Steve Winwood og Eric Clapton stofnuðu súperbandið Blind Faith ásamt Ginger Baker og Ric Grace árið 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á þá Clapton og afmælisbarnið Winwood taka eitt af þeirra 40 ára gömlu lögum á hljómleikum fyrir aðeins þremur árum.

AF FRÆGUM

Simon bætir við fasteignasafn sitt

Idol-dómarinn Simon Cowell er einn fára auðmanna í heiminum sem hefur bætt fjármunum í fjárhirslur sínar að undanförnu þrátt fyrir heimskreppuna. Hann flutti fyrir fáeinum mánuðum í glæsileg híbýli í Los Angeles. Fínheitin kosta jafnvirði 2,8 milljarða íslenskra króna eftir að hann hefur á fjórum árum látið gera allt í stand nákvæmlega eftir sínu höfði. Fyrir á hann flottar húseignir út um allan heim. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira.  

TÓNLIST

Roger Waters með tvær plötur og Wall tónleika

Roger Waters, sem lauk hér tveggja ára tónleikaferð 2008 undir nafninu The Dark Side of the Moon, er með tvær plötur í burðarllðnum og leggur upp í nýja tónleikaferð í september undir nafniu The Wall Live. Á tónleikunum tekur hann alla Wall-plötuna. Hann er sem sé hinn sprækasti í rokkinu, orðinn 66 ára. Í fyrra veitti hann viðtöku merkum verðlaunum fyrir framlag til bæði dægurtónlistar og sígildrar tónlistar. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa, sjá og heyra.

TÓNLIST

Nelson og Norah

Sveitasöngvarinn, lagasmið- urinn, rithöfundurinn og ljóðskáldið Willie Nelson nálgast áttræðisaldurinn óðfluga en undirbýr samt af sama áhuga og áður enn eina tónleikaferðina. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu hann taka lagið með Noruh Jones.

TÓNLIST

ERIC BURDON MEÐ NÝTT BAND

Eric Burdon er með nýtt band á hljómleikaferð 64 ára gamall. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á hann syngja The House of the Rising Sun með hljómsveitinni Animals. Mikið skárra en söngur hans í dag að mati Samúels.

TÓNLIST

Skákaði Bítlunum í fyrstu tilraun ...

Engelbert Humperinck varð 74 ára i gær. Hann skákaði sjálfum Bítlunum með sínu fyrsta lagi árið 1967, en það seldist á smáskífu í metupplagi í Bretlandi það ár og komst í efsta sæti vinsældalista níu landa. Hann gerir út á lagið enn í dag og fyllir auðveldlega tónleikasali vestan hafs og austan. Smelltu á fyrirsögnina og rifjaðu upp lagið Release Me. Eitt vinsælasta vangalag sjöunda áratugarins.

KÍNVERSKU MERKIN

HVERNIG LÝSIR MERKIÐ ÞÉR?

Smelltu á fyrirsögnina til að sjá hvað kínverska stjörnuspekin segir um merkið þitt.

FERÐALÖG

BESTU SÖFNIN

Fjöldi listfræðinga var fenginn til að tilnefna tíu bestu söfn í heimi. Samúel birtir listann. Hefur þú séð eitthvert þessara safna? Kyrrlát stund á listasafni er andleg næring fyrir sálina.

TÓNLIST

Bocelli, Raggi, Cave, Coverdale

Fjölmargir söngvarar og hljóð- færaleikarar áttu afmæli 22. september auk Ragga Bjarna. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu listann yfir afmælisbörnin. Samúel kemur þér í snertingu við tengla inn á tónlistarvídeó með tónlistarfólkinu - og ljósmynda- syrpur af öðrum ...

TÓNLIST

Heilmikil tónlist

Ray Charles, Bruce Springsteen og Julio Iglesias eiga sama afmælisdag að ógleymdum djassistanum John Coltrone. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á tónlist þeirra í boði Samúels ...

ÍÞRÓTTIR

Getur líka sungið

Ein af þekktustu kynbombum Hollywood er hin sænska Karen Viktoria Silvstedt. Heilmikið fyrir augað og svo getur hún líka sungið sæmilega og hefur verið vinsæl í kvikmyndum og sjón- varpi. Smelltu á fyrirsögnina og kynntu þér málið nánar.

EINSTAKUR EINSTEIN

Heimsfrægur fugl

Við köllum snillinga gjarnan Einstein. Hér er páfagaukur sem verðskuldar vissulega það gælunafn. Hann kann yfir 200 orð, hljóð og stæla. Enda er hann orðinn frægasti fugl í heimi og er boðið í hvern frétta- og sjónvarpsþáttinn á fætur öðrum. Þetta verður þú að sjá og heyra.

PÆLINGAR

Til í makaskipti?

Skildu Jón Ásgeir og Ingibjörg vera til í makaskipti? Í því gæti falist góð tilbreyting samfara slökun eftir allan gauraganginn og þotulífið. Smelltu á fyrirsögn- ina til að lesa meira.